Óskarsverðlaunahafinn Jennifer Hudson er í viðræðum um að leika söngkonuna Aretha Franklin í nýrri mynd um ævi hennar.
Scott Bernstein, fyrrverandi yfirmaður hjá Universal, ætlar að framleiða myndina. Síðast framleiddi hann Straight Outta Compton.
Myndin um Aretha Franklin hefur verið í undirbúningi í þó nokkur ár og mun hún fjalla um feril „Respect“-söngkonunnar á sjöunda og áttunda áratugnum. Einnig fjallar hún um samband hennar við ofbeldishneigðan fyrrverandi eiginmann sinn Ted White.
Hudson hefur undanfarið leikið í sjónvarpsþáttaröðinni Empire og búist er við að hún haldi áfram í þáttaröð númer tvö.