Nýjasta kvikmynd Ragnars Bragasonar, Málmhaus, er nú í eftirvinnslu og hafa nokkrir rammar úr myndinni litið dagsins ljós.
Ragnar leikstýrði myndinni og skrifaði handritið. Tökur fóru að mestu fram undir Eyjafjöllum og í nágrenni. Framleiðslufyrirtæki myndarinnar er Mystery Ísland og meðframleiðandi er Hummelfilm frá Noregi. Framleiðendur eru Árni Filippusson, Davíð Óskar Ólafsson og Hreinn Beck.
Ragnar hefur áður gert myndir á borð við Börn, Foreldrar og Bjarnfreðason og er þekktur fyrir að blanda saman dramatík með glettum húmor.
Myndin segir söguna af þungarokksstelpunni Heru Karlsdóttir sem býr á sveitabænum Svarthamri. Hera er uppreisnagjarn, óþreyjufullur og miskilinn vandræðaunglingur á þrítugsaldri sem dreymir um hinn stóra heim og er sífellt á leiðinni í burtu en er föst á æskuslóðunum.
Hér fyrir neðan má sjá nokkra ramma úr Málmhaus.