Fyrsta stiklan fyrir tónlistarmyndina ævisögulegu; Jimi: All Is by My Side, með Andre Benjamin, leikara og liðsmanni hljómsveitarinnar Outkast, í titilhlutverkinu, hlutverki gítarhetjunnar og söngvarans Jimi Hendrix, er komin út.
Myndin verður frumsýnd þann 26. september nk.
Leikstjóri er Óskarsverðlaunahandritshöfundurinn John Ridley, sem fékk Óskarinn fyrir handrit sitt að 12 Years a Slave fyrr á þessu ári. Hann skrifaði einnig handritið.
„Viltu að hlutirnir breytist?“ spyr Benjamin í hlutverki Jimi í stiklunni. „Þá þarf kraftur ástarinnar að taka við af ástinni á valdinu – þá breytast hlutirnir.“
Kíktu á stikluna hér fyrir neðan:
“All Is by My Side” var heimsfrumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Toronto síðasta haust.
Myndin varð til eftir að Ridley uppgötvaði lag Hendrix, „Sending My Love to Linda,“ sem fjallaði um fyrirsætuna Linda Keith, sem hlustaði á Hendrix á tónleikum í London árið 1966, og lék lykilhlutverk í að hvetja hann áfram á framabrautinni.
Til gamans má geta þess að til að gera persónuna trúverðugri í myndinni þá lærði Benjamin að spila á gítar eins og Hendrix gerði – en hann var örvhentur en lék á venjulegan gítar fyrir rétthenta, með strengina í öfugri röð.
Kíktu einnig á atriði úr myndinni sem við birtum fyrr á árinu.