Tökur á fimmtu Bourne myndinni hófust í dag á Tenerife á Spáni, og til að fagna því setti framleiðandi myndarinnar, Frank Marshall, fyrstu ljósmyndina af Matt Damon í hlutverki sínu í myndinni á Twitter.
Eins og sést á myndinni er Damon að afvefja hnúa sína, mögulega eftir hörkuslag við einhvern óþokka myndarinnar, hugsanlega aðal óþokkann, sem Vincent Cassel leikur, og við sögðum frá hér á dögunum.
Auk Damon og Cassel þá eru þau Alicia Vikander og Tommy Lee Jones í stórum hlutverkum.
First day of principal photography complete and happy to report, BOURNE is back! #Bourne2016 pic.twitter.com/ncIILnGKWr
— Frank Marshall (@LeDoctor) September 8, 2015
Paul Greengrass snýr aftur sem leikstjóri, en hann og Damon sátu hjá við gerð fjórðu Bourne myndarinnar, The Bourne Legacy.
Myndin kemur í bíó 29. júlí, 2016.