Nú þegar nýtt ár er gengið í garð þá er upplagt að líta yfir farinn veg og skoða þær myndir sem gengu ekki upp fjárhagslega á árinu sem var að líða. Þrátt fyrir að 2014 hafi ekki átt myndir á borð við John Carter eða The Lone Ranger þá voru margar myndir sem floppuðu illa á árinu.
BoxOffice.com hefur tekið saman fjármagnsáætlanir og heildartekjur mynda á heimsvísu. Á listanum eru myndir á borð við Kevin Costner-myndina Draft Day, sem tapaði rúmum 20 milljónum USD og Left Behind með Nicholas Cage í aðalhlutverki, sem tapaði tæpum 17 milljónum USD.
Hér að neðan má sjá listann frá Box Office.com yfir þær myndir sem voru í hvað mestu tapi eftir árið og má væntanlega ekki búast við framhaldi af þessum myndum. Listinn er ekki í neinni ákveðinni röð.
Draft Day
Heildartekjur á heimsvísu: $29,765,237
Fjármagn í gerð myndar: $50,000,000
Sin City: A Dame to Kill For
Heildartekjur á heimsvísu: $39,499,349
Fjármagn í gerð myndar: $90,000,000
Get On Up
Heildartekjur á heimsvísu: $32,403,100
Fjármagn í gerð myndar: $55,000,000
I, Frankenstein
Heildartekjur á heimsvísu: $71,519,465
Fjármagn í gerð myndar: $90,000,000
The Identical
Heildartekjur á heimsvísu: $2,840,991
Fjármagn í gerð myndar: $32,000,000
Left Behind
Heildartekjur á heimsvísu: $19,682,924
Fjármagn í gerð myndar: $27,000,000
The Legend of Hercules
Heildartekjur á heimsvísu: $57,671,538
Fjármagn í gerð myndar: $80,000,000
Legends of Oz: Dorothy’s Return
Heildartekjur á heimsvísu: $18,675,347
Fjármagn í gerð myndar: $85,000,000
Men, Women & Children
Heildartekjur á heimsvísu: $1,705,908
Fjármagn í gerð myndar: $16,000,000
Pompeii
Heildartekjur á heimsvísu: $117,831,631
Fjármagn í gerð myndar: $115,000,000
Sabotage
Heildartekjur á heimsvísu: $18,014,052
Fjármagn í gerð myndar: $55,000,000
Transcendence
Heildartekjur á heimsvísu: $103,039,258
Fjármagn í gerð myndar: $135,000,000
Vampire Academy
Heildartekjur á heimsvísu: $15,631,979
Fjármagn í gerð myndar: $26,000,000
Winter’s Tale
Heildartekjur á heimsvísu: $27,442,231
Fjármagn í gerð myndar: $80,000,000