Vegna nýlegra hneykslismála þá má segja að tímasetningin hefði ekki getað verið verri til að frumsýna FIFA myndina ævisögulegu United Passions í bíó, en myndin var frumsýnd í takmarkaðri dreifingu í Bandaríkjunum um síðustu helgi, réttu ári eftir að hún var frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Cannes.
Myndin kostaði margar milljónir Bandaríkjadala og með helstu hlutverk fara stórleikararnir Tim Roth, Sam Neill og Gerard Depardieu.
Það er skemmst frá því að segja að gagnrýnendur hafa hakkað myndina í sig, og aðsóknin um helgina var eftir því; nánast engin.
Bandaríska dagblaðið The New York Times segir hana „eina þá óáhorfanlegustu mynd í manna minnum […]“.
Tekjur af sýningu myndarinnar í tíu bíóum í Bandaríkjunum um helgina námu 607 dölum, eða um 80 þúsund íslenskum krónum. Eitt bíó í Phoenix fékk 9 dollara í tekjur yfir helgina, sem þýðir að aðeins einn aðili borgaði sig inn.
Samkvæmt CNN fréttavefnum þá er ekki talið að þetta valdi FIFA miklum áhyggjum, enda sitja þeir á peningastabba að andvirði 1,5 milljarður dala, eða um 200 milljarðar íslenskra króna.
Sjáðu stiklu úr myndinni hér fyrir neðan: