Emma Stone hefur samþykkt að leika í Love May Fail sem er byggð á skáldsögu Matthew Quick, höfundar Silver Linings Playbook.
Mike White (Year Of the Dog og School of Rock) skrifaði handritið, sem er eins konar gamandrama.
Myndin fjallar um Portia Kane sem yfirgefur íburðamikið heimili sitt í Flórída og flytur aftur til móður sinnar sem býr í smábæ, eftir að hún uppgötvar að eiginmaður hennar, sem er klámmyndaleikstjóri, hefur haldið framhjá henni.
Í gamla heimabænum tekur hún þátt í því að lagfæra orðspor fyrrverandi enskukennara síns, Nate Vernon, sem varð að hætta störfum eftir ofbeldisfullt atvik með nemanda.
Samkvæmt Empire á eftir að ráða leikstjóra myndarinnar.