Þegar Tom Cruise var upphaflega ráðinn í hlutverk í bíómynd sem byggð er á sögupersónunni Jack Reacher, sem er aðalhetjan í vinsælum spennusögum eftir Lee Child, töldu sumir að Cruise væri of ólíkur Reacher að líkamsburðum til að vera trúverðugur í hlutverkinu.
Paramount kvikmyndaverið bregst nú við þessum áhyggjum manna með því að tefla fram engum öðrum en Lee Child sjálfum í nýju myndbandi, þar sem hann lofar frammistöðu Cruise í hlutverkinu.
Skoðið atriði úr myndinni með viðtali við Child í þessu myndbandi hér að neðan:
Jack Reacher er leikstýrt af Christopher McQuarrie, og með önnur hlutverk fara m.a. Werner Herzog, Rosamund Pike, Richard Jenkins, David Oyelowo og Robert Duvall.
Myndin verður frumsýnd 21. desember í Bandaríkjunum, en 11. janúar hér á landi.