Kitli-plakat hefur verið gefið út fyrir framhaldið af myndinni Rise of the Planet of the Apes; Dawn of the Planet of the Apes. Á plakatinu, sem netheimar eru reyndar ekki 100% vissir um hvort að sé opinbert frá framleiðendum, eða gert af aðdáeanda ( e. fan made poster ) er Caesar, aðalapinn, vígalegur á svip. Andy Serkis leikur Caesar.
Hvort sem plakatið er opinbert eða ekki, þá gerir það ekkert annað en að auka spennuna fyrir myndinni sem frumsýnd verður 18. júlí, 2014.