Ný stikla fyrir nýjustu mynd Scott Cooper, Out of the Furnice hefur verið birt. Cooper hefur áður leikstýrt Crazy Heart sem er með Jeff Bridges í aðalhlutverki. Myndin kemur í bíóhús í Bandaríkjunum þann 6. desember og 24. janúar á Íslandi.
Söguþráður myndarinnar er eftirfarandi: Russell og yngri bróðir hans Rodney búa í hinu efnahagshrjáða Ryðbelti, og hefur alltaf dreymt um að flýja og finna betra líf annars staðar. En þegar grimmileg atburðarás verður til að Russell lendir í fangelsi, þá leiðist bróðir hans inn í ofbeldisfyllstu og grimmustu glæpaklíku í Norð-austurríkjum Bandaríkjanna – sem eru mistök sem kosta hann nánast allt. Þegar Russell sleppur úr fangelsi, þá verður hann að velja á milli síns eigin frelsis, eða taka mikla áhættu með því að ná fram réttlæti til handa bróður sínum.