Væntanlegt - Kvikmyndir.is
Væntanlegt
77 kvikmyndir á leiðinni í íslensk kvikmyndahús
Október 2026
11 myndir
NAZA
Frumsýning 21. okt.Myndin byggir á samtölum við 24 uppljóstrara í her og leyniþjónustu ísraelska hersins sem lýsa því hvernig gervigreind var nýtt við árásir til að drepa tugþúsundir óbreyttra borgara á Gaza.
Clayface
Frumsýning 22. okt.Matt Hagen skýst upp á stjörnuhimininn í Hollywood frá því að vera götukrakki í Gotham, en því lýkur öllu á hörmulegan hátt þegar athafnir glæpaforingja á svæðinu valda því að hann afmyndast illa í framan. Allslaus og yfirgefinn af teymi sínu fer Matt í nýstárlega meðferð sem á undraverðan hátt endurheimtir fyrra útlit hans … en hefur líka óvænt áhrif á raunveruleikaskyn hans og sendir hann á braut hefndar og eyðileggingar.
Forgotten Island
Frumsýning 22. okt.Jo og Raissa eru strandaglópar í dularfullum heimi gleymdu eyjunnar Nakali. Þau uppgötva að eina leiðin heim gæti verið á kostnað ævilangra sameiginlegra minninga.
Fjord
Frumsýning 22. okt.Eftir andlát foreldra Mihai yfirgefa þau Mihai og Lisbeth Gheorghiu allt í Rúmeníu og flytja með börnum sínum í afskekkt þorp í Noregi í von um að byrja nýtt líf í nálægð við fjölskyldu Lisbethar. Þar kynnast þau nágrönnum sínum, Halberg-fjölskyldunni, en hlýja þeirra gefur fyrirheit um nýtt upphaf. En brothættur friðurinn tekur að rakna upp þegar ung dóttir Gheorghiu-hjónanna, Elia, mætir í skólann öll í marblettum.
BTS WORLD TOUR 'ARIRANG' IN BUENOS AIRES: LIVE VIEWING
Frumsýning 25. okt.Fyrsta beina útsendingin frá tónleikurm suður-kóresku hljómsveitarinnar BTS í Suður-Ameríku. Upplifðu BTS WORLD TOUR 'ARIRANG' í kvikmyndahúsum um allan heim, í beinni útsendingu frá Búenos Aíres í Argentínu! Þessir stórkostlegu tónleikar munu færa sprengikraftinn af troðfullum leikvanginum beint á hvíta tjaldið.
Back to the Beginning: Ozzy's Final Bow
Frumsýning 28. okt.Þessir tónleikar eru kraftmikil afturhvarf til upprunans og sýna bresku rokksveitina Black Sabbath í sínu besta formi – þar sem hljómsveitin kemur saman á ný til að flytja sígilda slagara með hráum krafti og goðsagnakenndri nákvæmni.
Bitter Christmas
Frumsýning 29. okt.Á Spáni árið 2025 á frægur kvikmyndaleikstjóri í erfiðleikum með að skrifa handrit að sjálfsævisögulegri kvikmynd sem gerist á Spáni árið 2004. Hún fjallar um misheppnaðan kvikmyndaleikstjóra sem gerist auglýsingaleikstjóri og fær kvíðakast sem neyðir hana til að taka sér frí og heimsækja Kanaríeyjar, þar sem hún hefur vinnu við nýja kvikmynd.
Skrímslaskólinn
Frumsýning 29. okt.Hin 12 ára Mia og loðna gælurottan hennar, Quentin, eru send í hinn dularfulla Rotwood skóla eftir að hafa lent í vandræðum í gamla skólanum einu sinni of oft. Nýi skólinn gefur henni gæsahúð og Mia þarf að finna leið út áður en nemendurnir átta sig á því að hún er ekki skrímsli eins og þau! En aðstoðarskólastjórinn Van Vlad hefur sérstaka óbeit á mönnum og Mia er hrædd um að hann sjái í gegnum hana.
Iceguys – kvikmyndin
Frumsýning 30. okt.Þegar strákasveitin ICEGUYS villist óvart inn í alþjóðlegu raunveruleikakeppnina Battle of the Boybands, neyðast þeir til að keppa við aðrar strákasveitir til að tryggja sér opnunarpláss á tónleikaferðalagi hinnar goðsagnakenndu Backstreet Boys. En draumurinn reynist flóknari og hættulegri en þeir bjuggust við.
Audition
Frumsýning 30. okt.Kvikmyndin hefst sem lágstemmd ástarsaga en breytist hægt og örugglega í eina alræmdustu martröð japanskrar kvikmyndasögu. Einmana ekkill sviðsetur áheyrnarprufu fyrir kvikmynd til að finna sér nýjan maka þar sem Asami verður á vegi hans.
BTS WORLD TOUR 'ARIRANG' IN SÃO PAULO: LIVE VIEWING
Frumsýning 31. okt.Upplifðu BTS WORLD TOUR „ARIRANG“ í kvikmyndahúsum um allan heim, í beinni útsendingu frá São Paulo í Brasilíu! Þessir stórkostlegu tónleikar marka lokakaflann í tónleikaferðalagi suður-kóresku hljómsveitarinnar BTS um Suður-Ameríku. Þeir munu færa sprengikraftinn frá troðfullum leikvanginum í Brasilíu beint á hvíta tjaldið.
Nóvember 2026
20 myndir
George Michael: The Faith Tour
Frumsýning 4. nóv.Mögnuð innsýn inn í Faith-tónleikaferðalag breska poppsöngvarans George Michael frá árinu 1988, sem tekið var upp í hinu fræga Palais Omnisports de Paris-Bercy. Í þessu einstaka efni, sem var sett saman úr upptökum frá 14 kvikmyndavélum á 35mm filmu á tveimur kvöldum (30.–31. maí 1988), má sjá hina 24 ára gömlu poppstjörnu á hátindi feril síns
The Cat in the Hat
Frumsýning 5. nóv.Kötturinn með höttinn gerir það sem hann gerir best og dreifir gleði til barna á sinn fáránlega, einkennandi og einstaklega ósvífna hátt. Hann flytur þau og áhorfendur í ævintýralega ferð um nýjan heim. Hetjan okkar tekst hér á við sitt erfiðasta verkefni til þessa fyrir S.S.Í.I. (Stofnun fyrir Stöðu Ímyndunarafls og Innblásturs ehf.) til að gleðja Gabby og Sebastian, systkini sem eru nýflutt í bæinn. Kötturinn er þekktur fyrir að ganga of langt og þetta gæti því verið síðasta tækifæri þessa "óreiðuframleiðanda" til að sanna sig... eða missa töfrahattinn sinn!
Ghost Soldier
Frumsýning 5. nóv.Vopnakerfisverkfræðingur og fyrrverandi sérsveitarmaður í Grænhúfunum, eða Green Beret, verndar nágranna sína í Wyoming fyrir miskunnarlausu fyrirtæki sem ógnar dreifbýlu samfélagi þeirra.
Wild Horse Nine
Frumsýning 5. nóv.Skömmu fyrir valdaránið í Síle árið 1973 eru CIA-fulltrúarnir Chris og Lee sendir frá Santíagó til Páskaeyjar af yfirmanni sínum, MJ. Mitt á meðal hinna þekktu styttna á eyjunni glíma þessir gömlu samstarfsfélagar við myrka fortíð sína og samsæri samtímans. Á sama tíma ógnar nýtilkomið samband Chris við tvo uppreisnargjarna stúdenta því ferð allra til þessarar afskekktu paradísar fari úr skorðum.
Gentle Monster
Frumsýning 5. nóv.Þau eru nýflutt í sveitasæluna. En líf píanistans Lucy umturnast þegar eiginmaður hennar er handtekinn, grunaður um hryllilegan glæp. Í kjölfarið neyðist hún til að horfast í augu við sannleikann um manninn sem hún taldi sig þekkja best og endurmeta lífið og ástina upp á nýtt.
Wicker
Frumsýning 5. nóv.Í útjaðri þorps við sjóinn býr fiskikona; illa lyktandi, einhleyp og sífellt höfð að athlægi. Dag einn, komin með nóg af þröngsýnum og teprulegum nágrönnum sínum, pantar hún sér eiginmann úr pílviði. Í þessum annars íhaldssama bæ vekur þetta óhefðbundna ástarsamband hneykslan, afbrýðisemi og glundroða.
Godzilla Minus Zero
Frumsýning 6. nóv.Stríðið færði Japan niður á núllpunkt og Godzilla steypti því alla leið í mínus. Tvö ár eru liðin síðan þá og þjóðin hefur háð erfiða baráttu til að ná bata og endurheimta loks daglegt líf sitt. Einmitt þegar mannkyninu tókst að halda í frið sem hart var barist fyrir, skellur á ný ógn sem kremur vonina á augabragði.
Beyond Live - Stray Kids World Tour RUN IT SEOUL
Frumsýning 7. nóv.Í fyrsta sinn býður suður-kóreska strákasveitin Stray Kids aðdáendum um allan heim upp á einstaka beina útsendingu frá „Stray Kids World Tour “ í Tokyo Dome, sem verður sýnd í kvikmyndahúsum víðs vegar um heiminn. Útsendingin endurspeglar metnað og óstöðvandi vegferð Stray Kids í átt að stærri markmiðum og enn glæsilegri tónleikasviðum. Átta meðlimir hópsins – Bang Chan, Lee Know, Changbin, Hyunjin, HAN, Felix, Seungmin og I.N – heilla áhorfendur með kraftmiklum dansatriðum, mögnuðum söng og einstæðri sviðsframkomu sem skilar ógleymanlegri tónleikaupplifun. Tónleikarnir hefjast á laginu „Hall of Fame“, sem endurspeglar ætlun Stray Kids að marka eigin spor í tónlistarsögunni. Dagskráin leiðir áhorfendur í gegnum tónlistarferðalag hópsins, allt frá fyrstu skrefum þeirra til þeirrar alþjóðlegu velgengni sem þeir njóta í dag. Stórbrotnar sviðsuppsetningar, innblástur úr hefðbundinni kóreskri sviðslist og glæsileg leysilýsing skapa magnaða stemningu sem fær áhorfendur til að syngja, dansa og fagna saman – hvort sem þeir eru staddir í Tokyo Dome eða í kvikmyndahúsi hinum megin á hnettinum. Þessi einstaka beinu útsending frá Tókýó færir STAY-aðdáendum alls staðar í heiminum tækifæri til að upplifa kraftinn, sjónarspilið og þá ósvikna orkusem einkennir tónleika Stray Kids – saman á stóra tjaldinu.
Ebenezer: A Christmas Carol
Frumsýning 12. nóv.Spennandi draugasaga sem gerist í London á tímum rithöfundarins Charles Dickens. Hún segir frá yfirnáttúrulegu ferðalagi manns sem þarf að horfast í augu við fortíð sína, nútíð og framtíð í baráttu fyrir annarri tilraun til sáluhjálpar.
The Great Beyond
Frumsýning 12. nóv.Höfundur vinsælla fantasíuskáldsagna kemst að því að goðsagnaheimurinn sem hann er þekktur fyrir að hafa skapað er í raun og veru til.
How to Rob a Bank
Frumsýning 12. nóv.Hópur bankaræningja með mikla þekkingu á samfélagsmiðlum sendir út myndbönd af djörfum ránum sínum, óafvitandi um að vaxandi vinsældir þeirra á netinu hafa komið þeim í sigti reynds alríkislögreglumanns og snjalls hugbúnaðarverkfræðings. Þrátt fyrir að þetta ólíklega tvíeyki nálgist þá óðfluga, þá þenur glæpahringurinn þolmörkin og leggur allt í sölurnar fyrir metnaðarfyllsta rán sitt til þessa.
Wildwood
Frumsýning 12. nóv.Prue og bekkjarfélagi hennar, Curtis, dragast inn í forboðinn töfraskóg fullan af galdraverum, tryggum bandamönnum og ógurlegum andstæðingum, þegar þau leggja upp í örvæntingarfulla leit að Mac, litla bróður Prue, sem hefur verið rænt af krákum undir forystu dularfullrar konu að nafni Alexandra.
Everytime
Frumsýning 12. nóv.Harmleikur þjappar móður, dóttur og unglingsdreng saman. Hið ólíklega tríó glímir við sektarkennd og fyrirgefningu og fer í ferðalag til Tenerife í fjölskyldufrí sem aldrei varð að veruleika. Í sólskininu byrja fortíð og nútíð hljóðlega að skarast.
Sweetheart
Frumsýning 12. nóv.Nico er ungur drengur frá Mílanó á Ítalíu sem er sendur til að eyða sumrinu hjá frænku sinni á Sikiley, en hjá henni er hvorki þráðlaust net né nútímaþægindi. Ferðalag sem hann var penntur fyrir breytist í töfrandi ævintýri þegar hann uppgötvar að dularfullt hús frænku hans geymir leyndarmál og ef til vill fornar vættir sem leynast innan veggja þess.
The Hunger Games: Sunrise on the Reaping
Frumsýning 19. nóv.Myndin gerist 24 árum fyrir atburði fyrstu Hungurleikamyndarinnar, og hefst morguninn fyrir fimmtugustu hungurleikana. Meðal keppenda er Haymitch Abernathy þegar hann var ungur maður.
Paradis
Frumsýning 19. nóv.Dönsk fjölskylda nýtur lífsins í fríi í sannkallaðri orlofsparadís. En utan við hótelið þeirra blasir önnur veröld við, flóttamannastraumur fólks og átakanlegur veruleiki. En kvöld eitt þegar þau eru nýlega komin keyra þau óvart á ókunnan mann. Þá breytist allt ...
Ramayana
Frumsýning 19. nóv.Forn goðsögn segir frá ungum prinsi og prinsessu, en hjónaband þeirra og síðar útlegð marka upphaf goðsagnakenndrar ferðar. Saga þeirra um ást, skyldu og örlög leggur grunninn að frekari áskorunum framundan.
Dzień Dziecka księdza Jana Kaczkowskiego
Frumsýning 21. nóv.Séra Jan Kaczkowski var heillandi prestur en jafnframt ósköp venjulegur maður. Markaður af ólæknandi sjúkdómi varð hann að eigin sögn „krabbameinsstjarna“ sem barðist fyrir reisn, mannúð og réttinum til að lifa lífinu til fulls í þágu þeirra sem voru sjúkir, berskjaldaðir og týndir.
Hexed
Frumsýning 26. nóv.Vandræðalegur unglingsstrákur og metnaðarfull móðir hans komast að því að það sem gerir hann óvenjulegan gætu verið töfrakraftar sem eiga eftir að umturna lífi þeirra beggja og opna leynilegan töfraheim.
Focker-In-Law
Frumsýning 26. nóv.Ungur maður að nafni Henry, sonur Gregs og Pam Focker, ýtir af stað ringulreið innan fjölskyldunnar þegar hann hyggst giftast mjög ákveðinni konu sem virðist alls ekki henta honum.
Desember 2026
9 myndir
Músajól
Frumsýning 3. des.Lítil músafjölskylda skipuleggur rólega jólahátíð í húsinu sem þau búa í fyrir utan borgina, en hátíðahöldin raskast þegar óvænt mannfólk birtist í húsinu. Þegar mýsnar reyna að fela undirbúning sinn bregst mannfólkið við hávaðanum á bak við veggina af hörku. Músajól er stórskemmtileg jólamynd fyrir alla fjölskylduna og er að sjálfsögðu með íslensku tali.
Violent Night 2
Frumsýning 3. des.Þegar jólasveinninn gleymir hinum sanna tilgangi jólanna, lendir hann í miðju líflegu verslunarmiðstöðvarsamfélagi sem þarfnast sárlega hjálpar hans. Hann hefur engan töframátt og þarf að finna aðra leið til að takast á við fantana sem ógna verslunarmiðstöðinni, og tíminn er naumur. Jólasveinninn verður að enduruppgötva trú sína á gæskuna og kalla til liðsauka á síðustu stundu frá þeirri einu persónu sem ekkert illmenni vill lenda í útistöðum við: konu jólasveinsins.
I Play Rocky
Frumsýning 3. des.Hin magnaða sanna saga um óþekktan leikara með óbifanlega trú á að honum væri ekki aðeins ætlað að skrifa handritið að bíómyndinni Rocky – honum var ætlað að vera Rocky Balboa. Sylvester Stallone var hafnað allsstaðar en lagði allt undir og heldur fast í að leika aðalhlutverkið sjálfur þrátt fyrir að líkurnar virðist vera honum í óhag.
Andre Rieu's 2026 Christmas Concert Let It Snow
Frumsýning 5. des.Við fögnum undursamlegasta tíma ársins á stóra tjaldinu með jólatónleikum André Rieu – Let It Snow. Þessi stórkostlega sýning er stútfull af hugljúfri jólaklassík, töfrandi völsum og skemmtilegum óvæntum atriðum sem setja bros á andlit allra.Með André Rieu verður hin heimsfræga Johann Strauss-hljómsveit hans, framúrskarandi sópransöngvarar og kraftmikill 120 radda karlakór sem aðstoða hann við að færa áhorfendum sannkallaðan jólaanda. Þessi ógleymanlegi viðburður er tilvalinn fyrir alla fjölskylduna, fullur af tónlist, hlátri og jólagleði. Upplifðu hátíðartöfra jólanna á stóra skjánum með fólkinu sem þú elskar og leyfðu jólasnjónum að umkringja þig. Ljúktu árinu með Let It Snow – aðeins í Smárabíó!
Ástríkur og konungsríkið Núbía
Frumsýning 7. des.Hinir ósigrandi Gallar breytast í meinlaus börn eftir að sjaldgæfur æskudrykkur blandast óvart ofan í töfradrykkinn sem gerir þá ofursterka. Til að finna mótefnið og bjarga þorpinu frá árás Rómverja leggja Ástríkur og Steinríkur í æsilega ferð til hins fjarlæga konungsríkis Núbíu.
Ink
Frumsýning 10. des.Hópur utangarðsfólks og hugsjónamanna fékk hugmynd að nýrri tegund frétta – fréttum sem myndu gefa fólkinu það sem það vildi og breyta ásýnd heimsins sem við lifum í í dag.
Avengers: Doomsday
Frumsýning 17. des.Ástsælar ofurhetjur úr þremur aðskildum heimum gætu lent í banvænum árekstri og standa frammi fyrir tilvistarógn ólíkri öllu sem þær hafa áður mætt.
Dune: Part Three
Frumsýning 17. des.Sem keisari glímir Paul Atreides við afleiðingar valdatöku sinnar á meðan pólitísk samsæri og heilagt stríð sem teygir sig þvert yfir vetrarbrautina ógna framtíðinni sem aðeins hann getur séð fyrir.
The Angry Birds Movie 3
Frumsýning 26. des.Red stendur frammi fyrir sinni stærstu áskorun til þessa … að lifa af föðurhlutverkið um leið og hann bjargar heiminum.
Janúar 2027
7 myndir
Jumanji: Open World
Frumsýning 1. jan.Hetjurnar okkar hafa áður sloppið úr síbreytilegum frumskógum Jumanji, en í þetta sinn kemur leikurinn til okkar – þegar Jumanji brýst út úr leikjatölvunni og gefur ringulreiðinni lausan tauminn í okkar heimi.
Behemoth!
Frumsýning 7. jan.Hinn hæfileikaríki sellóleikari Alex Serian snýr heim til Los Angeles eftir 20 ár á ferðalögum. Tónlistin, sem hefur verið stöðug og yfirþyrmandi í lífi hans, ber Alex í ævintýri sem mun breyta honum að eilífu.
Werwulf
Frumsýning 7. jan.Hrollvekjandi saga um fórnfýsi, fordæmingu og djöfulinn innra með okkur.
Children of Blood and Bone
Frumsýning 14. jan.Zelie og eldri bróðir hennar, Tzain, mynda bandalag með dóttur konungsins, Amari prinsessu, og syni hans, Inan prinsi, til að berjast gegn grimmilegri stjórn hans.
The Beekeeper 2
Frumsýning 14. jan.Annar hluti í seríunni. Söguþráður óákveðinn.
Jim Queen and the Quest for Chloroqueer
Frumsýning 23. jan.Dularfull veira gengur laus í París og hún hefur aðeins eitt skotmark: homma. Smitaðir veikjast þó ekki. Þeir verða… gagnkynhneigðir. Þegar Heterosis, dularfull veira sem gerir samkynhneigða menn gagnkynhneigða, geisar um hommasenuna í París, breytist Jim, hinn vöðvastælti konungur Líkamsræktardrottninganna, úr því að vera kóngur gleðigöngunnar í að vera útskúfaður af samfélaginu. Með aðeins Lucien, nýútsprunginn slána með stærra hjarta en magavöðva, sér við hlið, verður Jim að flýta sér að finna lækningu áður en sjúkdómurinn þurrkar út samfélagið sem eitt sinn dýrkaði hann.
ViQueens
Frumsýning 28. jan.Hugrökku víkingastúlkurnar Ingiríður og Heiðveig ögra hefðum til að skila laumufarþega, ungum dreng, aftur til Kína. Ferðalag þeirra liggur um ísi lagða firði, í gegnum býsanskar flækjur og eftir hinum goðsagnakennda Silkivegi, þar sem víkingaþrek blandast fornum kínverskum visdómi, óvæntum bandalögum og töfrum.
Febrúar 2027
8 myndir
Ice Age: Boiling Point
Frumsýning 4. feb.Geggjað ævintýri fullt af risaeðlum og hrauni sem leiðir Manny, Sid, Diego, Ellie, Scrat og hjörðina í gegnum ókönnuð svæði hins hættulega Týnda heims.
The Comeback King
Frumsýning 4. feb.Kántrístjarna hrynur af stalli og þarf að bjarga ferlinum sem er í frjálsu falli.
Karoshi
Frumsýning 4. feb.Fyrirtækjatryllir með samúræjablæ. Gerist í New York-borg undir japönskum áhrifum og inniheldur hefnd. Annars er söguþráður enn á huldu.
No Good Men
Frumsýning 11. feb.Árið er 2021 í Afganistan rétt áður en Talíbanar komust aftur til valda. Naru, eina kvikmyndatökukonan á aðalsjónvarpsstöðinni í Kabúl, á í erfiðleikum með að halda forræði yfir þriggja ára syni sínum eftir að hafa yfirgefið eiginmann sinn sem hélt stöðugt framhjá henni. Hún er sannfærð um að engir góðir menn séu til í landinu. Það kemur henni því verulega á óvart þegar Qodrat, mikilvægasti blaðamaður Kabúl TV, býður henni tækifæri til frama í starfi. Þegar þau ferðast þvers og kruss um borgina og fjalla um síðustu daga frelsisins kviknar neisti á milli þeirra og Naru fer að efast um eigin sannfæringu: getur verið að það sé í raun til góður maður þarna úti?
Narnia: The Magician's Nephew
Frumsýning 11. feb.Nýja kvikmyndin eftir leikstjórann Gretu Gerwig.
Wife and Dog
Frumsýning 18. feb.Óseðjandi græðgi Fairbank-fjölskyldunnar og samstarfsmanna hennar kyndir undir svikum og morðum í baráttunni um erfðaröðina.
CoComelon: The Movie
Frumsýning 18. feb.JJ leggur af stað í stærsta ævintýri lífs síns: Leikskólann. En þegar JJ uppgötvar á fyrsta degi sínum í skólanum að ástkæri bangsinn hans, Boba, er týndur, leggja JJ og vinir hans, Cody, CeCe og Nina, af stað í leiðangur sem flytur þau í töfraland þar sem Harmónía prinsessa ræður ríkjum og hefur skapað heim þar sem ein regla gildir: Enginn söngur.
The Revenge of La Llorona
Frumsýning 25. feb.Ævaforn bölvun syrgjandi móður beinist að fjölskyldu í vanda og neyðir hana til að horfast í augu við sína eigin leyndu fortíð á meðan hún berst fyrir lífi sínu gegn yfirnáttúrulegri reiði hennar.
Mars 2027
6 myndir
Gatto
Frumsýning 4. mar.Eftir að hafa flakkað um síkjum þaktar götur borgarinnar í mörg ár, fer svarti kötturinn Neró að efast um að hann hafi lifað réttu lífunum. Hann skuldar glæpaforingja kattasamfélagsins greiða og lendir í klemmu. Neró neyðist til að mynda óvæntan vinskap sem gæti loksins leitt hann að tilgangi sínum – nema Feneyjar verði honum að falli fyrst.
The Thomas Crown Affair
Frumsýning 4. mar.Glæsilegur ævintýramaður telur sig hafa framið hið fullkomna rán, en þarf þá að etja kappi við rannsóknarlögreglukonu tryggingafélags sem svífst einskis til að ná sínum manni.
The Exorcist: Martyrs
Frumsýning 11. mar.Fyrir þrettán árum batt Julie Miller, rannsóknarlögreglukona í New York-borg, enda á ógnarstjórn satanska raðmorðingjans Séra Sunnudags. Málið gerði hana að hetju og allar götur síðan hefur hún sökkt sér niður í starfið. Nú krotar nýr morðingi nafn hennar með blóði messudrengs á veggi grafhvelfingar undir kirkju og dregur hana aftur inn í myrkrið sem hún hélt að hún hefði grafið með honum.
The Nightingale
Frumsýning 18. mar.Líf tveggja franskra systra tvístrast þegar síðari heimsstyrjöldin hefst.
Godzilla x Kong: Supernova
Frumsýning 24. mar.Sjötta myndin í MonsterVerse-kvikmyndaseríunni. Hér er kafað dýpra í hið viðkvæma samband sambúðar og trausts milli manna og forsögulegra risa. Á sama tíma mun jarðskjálfta-skrímslastormurinn, sem hrundið var af stað með epískum árekstri Godzilla og Kong, tveggja verndara vistfræðilegs jafnvægis jarðar, enn og aftur yfirtaka hvíta tjaldið!
Day Drinker
Frumsýning 24. mar.Barþjónn á einkasnekkju hittir dularfullan gest um borð. Þau flækjast fljótlega inn í mál glæpamanns og tengjast á hátt sem engan óraði fyrir.
Apríl 2027
4 myndir
Lóa - goðsögn vindanna
Frumsýning 8. apr.Þegar lóurnar ákveða að fljúga ekki norður og boða vorið fer fimbulvetur í hönd og snædrottning rís til valda. Ung hugjónarsöm LÓA ákveður að safna saman hópi furðufugla sem leggja á sig stórkostlega hættu í miðju ríkidæmis drottningarinnar til þess að tryggja komu vorsins og þannig bjarga heiminum.
Not Alone
Frumsýning 15. apr.Á meðan undirbúningur stendur yfir fyrir byltingarkennt geimskot, kviknar óvæntur neisti á milli rólynds eldflaugavirkja og snjalls geimgrasafræðings – en þá brotlenda þrjár geimverur á flótta heima hjá honum, í leit að fari aftur til stjarnanna.
Spaceballs: The New One
Frumsýning 21. apr.Fjörutíu árum eftir atburði fyrstu Spaceballs-myndarinnar er vetrarbrautinni enn og aftur ógnað. Ógnin er svo illgjörn, svo óstöðvandi, svo gjörsamlega laus við allar frumlegar hugmyndir, að hún hefur svarið að endurvekja fortíðina ... hvern einasta bita af henni. Lone Starr er í felum, Vespa drottning situr í hásæti og Schwartz-ið er þynnra en kvikmyndasería sem gefur út sjónvarpsþætti í bíó. Eina von vetrarbrautarinnar er óagaður sonur Vespu, Starburst prins, og dularfullur ráðgjafi hallarinnar að nafni Destiny. Saman verða þau að finna Lone Starr, Yogurt og allar aðrar sígildar persónur sem aðdáendur heimta, áður en þau komast að þeim erfiða sannleika að þótt hægt sé að berjast gegn sumum ógnum, þá er endurræsingin ekki ein af þeim.
The Legend of Zelda
Frumsýning 28. apr.Leikin útgáfa af tölvuleikjaseríu Nintendo, Legend of Zelda.
Maí 2027
3 myndir
Beach Read
Frumsýning 6. maíÞegar ástarsagnarithöfundur og alvarlegur fagurbókmenntahöfundur – keppinautar með gjörólíka heimsmynd og alvarlega ritstíflu – verða óvænt nágrannar eitt sumar í litlum strandbæ við Michigan-vatn, ákveða þau að gera veðmál og skiptast á ritstíl, og mörkin milli skáldskapar og rómantíkur taka að mást út.
Anything but Ghosts
Frumsýning 6. maíÞegar hópur „draugaveiðara“ sem sækist eftir frægð og frama ræðst í verkefni sem er þeim ofviða fer allt hratt og skelfilega úr böndunum.
Star Wars: Starfighter
Frumsýning 26. maíSagan gerist um það bil fimm árum eftir atburði Star Wars: The Rise of Skywalker.
Júlí 2027
3 myndir
Shrek 5
Frumsýning 1. júl.Shrek og fjölskylda hans lenda í ævintýrum í hinu töfrandi konungsríki Lengra, lengra í burtu.
Fake Skating
Frumsýning 15. júl.Æskuvinirnir Dani og Alec hittast á ný í Minnesota. Eftir að hafa lent í vandræðalegum aðstæðum hefja þau gervisamband sem þróast hægt og rólega til að bæta orðspor sitt og komast í gegnum dramað í menntaskóla.
Minecraft 2
Frumsýning 22. júl.Steve og Alex fara enn dýpra inn í Overworld og uppgötva þar ný landsvæði og standa frammi fyrir ferskum áskorunum.
September 2027
2 myndir
The Simpsons Movie 2
Frumsýning 9. sep.Framhald kvikmyndarinnar frá 2007. Söguþráður óákveðinn.
200 Kopavogur
Frumsýning 23. sep.Sagan gerist á sjöunda áratugnum og fjallar um tvo bræður sem eru meðal fyrstu íbúa í nýju úthverfi á Íslandi. Dag einn biður eldri bróðirinn þann yngri um greiða sem mun hafa djúpstæð áhrif á líf þeirra beggja.
