Staðfest hefur verið að kvikmyndin The Hobbit sem leikstýrt er af Guillermo del Toro mun verða í tveimur hlutum. Myndin er forleikur Lord of the Rings, en Peter Jackson hjálpaði til við gerð handritsins eins og gefur að skilja.
,,Við höfum ákveðið að gera The Hobbit að tveimur myndum sem munu innihalda the White Council og för Gandalf til Dol Guldur. Það eru mistök að okkar mati að reyna að troða þessu öllu saman í eina mynd. sögðu Del Toro og Jackson í viðtali.
The Hobbit kemur í bíó árið 2012.