Kvikmyndir.is - Kvikmyndir fyrir alla
    • Sýningatímar í bíó
    • Nostalbíó
    • Væntanlegt í bíó
    • Streymi
      • Nýtt á streymi
      • Væntanlegt
    • Veituleitin
      • Allar myndir
      • Allar íslenskar myndir
      • Væntanlegar íslenskar myndir
      • Listar
    • Fréttir
      • Myndir mánaðarins 2009-2019
      • Tökustaðir
      • Hlaðvörp
      • Vinsælast í bíó
      • Vinsælast í USA
  • Skrá innNýskrá
    ÍslenskaEnglishPolski
NýskráInnskrá

Fyrrum barnastjarna sannar sig á ný

20. maí 2014 23:57

Fyrrum barnastjarnan Haley Joel Osment hefur lítið látið á sér kræla undanfarin ár, en svo virðist sem það sé búið að blása nýju lífi í leiklistarferil hans, því framundan eru ótal spennandi verkefni. Joel Osment virðist því ekki ætla að falla í þá gryfju líkt og aðrar barnastjörnur sem hætta eða leiðast út í vitleysu.

joelosment

Osment kom fyrst fram sem sonur Tom Hanks í hinni geysivinsælu mynd Forrest Gump, en skaust síðan á stjörnuhiminninn fyrir hlutverk sitt sem taugaveiklaði drengurinn í The Sixth Sense, en hann hlaut Óskarsverðlaunatilnefningu fyrir leik sinn í þeirri mynd.

Í dag var frumsýnd ný stikla úr myndinni I’ll Follow You Down. Osment leikur þar son vísindamanns sem hverfur sporlaust þegar persóna Osment er aðeins kornung. Mörgum árum síðar er honum gert kunnugt að faðir hans hvarf inn í annað tímarúm og að hann geti komið föður sínum aftur til baka, en fyrst þarf hann að leysa vísindalegar þrautir upp á sínar eigin spýtur.

Myndin hefur verið á flakki um kvikmyndahátíðir síðustu misseri en er áætluð í almennar sýningar í haust. Með önnur hlutverk fara þau Gillian Anderson, Victor Garber og Rufus Sewell. Myndinni er leikstýrt af Richie Mehta. Hér að neðan má sjá nýjustu stikluna úr myndinni.

Auglýsing

Framundan hjá Joel Osment eru spennandi verkefni og má þar telja nýjustu kvikmynd Kevin Smith og kvikmyndina Entourage, sem er byggð á þáttunum vinsælu. Joel Osment er því staðráðinn í að sanna sig á ný sem fullorðins leikari.

Stikk:
Haley Joel Osmenti'll follow you downstikla

Tengdar fréttir

2. ágú 2025Engir öfga hægrimenn eða morðingjar
11. nóv 2024Cruise á harðahlaupum í fyrstu stiklu fyrir MI8
20. jún 2024Spurning um hjarta en ekki parta
10. júl 2023Napóleon mættur í fyrstu stiklu og plakati

Finndu eitthvað til til að horfa á

Leitaðu eftir tegund, ári, einkunn, streymisveitum og fleira!

Prófa Veituleitina
Hasarmyndir Gamanmyndir Hryllingsmyndir Netflix RÚV Disney+

Nýjar fréttir

  • Iceguys – Kvikmyndin rýkur í toppsætið
    Iceguys – Kvikmyndin rýkur í toppsætið
  • Fleiri pabbahelgar snúa aftur á RÚV með húmor og einlægni
    Fleiri pabbahelgar snúa aftur á RÚV með húmor og einlægni
    Innlendar fréttir
  • Vigilant fer í tökur á Íslandi með Kari Skogland við stjórnvölinn
    Vigilant fer í tökur á Íslandi með Kari Skogland við stjórnvölinn
    Innlendar fréttir
  • Nýjar myndir slá í gegn um helgina
    Nýjar myndir slá í gegn um helgina
  • Nýtt á streymi
    Nýtt á streymi

Ný álit

  • Mortal Engines
    Mortal Engines
    ★★★☆☆ maggi1973 5. nóvember 2026

    Fín ævintýramynd með henni Heru Hilmars og Hugo Weaving - Peter Jackson…

  • Resident Evil
    Resident Evil
    ★★★★⯨ Róbert Gíslason 31. október 2026

    Það er töluvert langt síðan að ég skemmti mér svona vel í bíó, þetta var…

  • Interstellar
    Interstellar
    ★★★★★ Hálfdán 27. október 2026

    Hún er rosa góð. Alltaf jafn gaman að geta upplifað hana í bíó með alvöru…

Kvikmyndalistar

Faldar perlur á streymi48 titlar
Allir listar →

Kvikmyndir.is

  • App
  • Fréttabréf
  • API
  • Auglýsingar
  • Instagram
  • Facebook
  • Um Kvikmyndir.is

Helstu tenglar

  • Sýningatímar í bíó
  • Væntanlegt í bíó
  • Veituleitin
  • Persónuverndarstefna
  • Skilmálar

Áhugaverðar fréttir

  • Bestu og verstu bíósalirnir á höfuðborgarsvæðinu - UPPFÆRT
  • Mamma þín er ekki að fara að bjarga þér
  • Hollywood Norðursins: draumur Baltasars um stærri íslenskan kvikmyndaiðnað
  • End of Oak Street spurningaleikur
  • The Odyssey sló í gegn um helgina
🎬 Hæ, ég er Kvikan — bíóráðgjafinn þinn. Skráðu þig inn til að spjalla við mig um bíó, streymi og meðmæli. Skrá mig inn

Skráðu þig inn

til að bæta við listann þinn

Gleymt lykilorð? · Nýskráning