Fyrsta plakatið úr framhaldsmyndinni Dawn of the Planet of the Apes er komið á netið. Eins og sjá má er apahöfðinginn Caesar, sem Andy Serkis túlkar, heldur betur ófrýnilegur á svipinn og virkar ekki í sérstaklega góðu skapi. Með plakatinu er ætlunin að hita upp fyrir fyrstu stiklu myndarinnar.
Stiklan er væntanleg næstkomandi miðvikudag, samkvæmt leikstjóranum Matt Reeves.
Myndin kemur í bíó í júlí á næsta ári. Auk Serkis leika Jason Clarke, Gary Oldman og Keri Russell stærstu hlutverkin.