Ný stikla er komin fyrir vísindaspennumyndina G.I. Joe 2: Retaliation, eða G.I. Joe 2: Hefnd, en aðalhlutverk í myndinni leika töffararnir Bruce Willis, Channing Tatum og Dwayne Johnson ( The Rock ) m.a.
G.I. Joe sérsveitin er sökuð ranglega um landráð, og forsetinn tekur þá ákvörðun að leysa sveitina upp. Þeir meðlimir sérsveitarinnar sem eftir eru, þurfa nú að mæta Zartan, hans samverkamönnum, og þjóðarleiðtogum sem hann hefur undir sinni stjórn.
Skoðið stikluna hér að neðan: