Það er greinilegt að aðstandendur og leikarar í bresku spennuþáttunum Fortitude hafi notið dvalarinnar í botn hér á landi, því í nýju og lengra myndbandi en við höfum séð áður frá tökum þáttanna, er fjallað sérstaklega um Ísland sem tökustað, og farið fögrum orðum um landið okkar.
Tökur þáttanna fóru fram á Reyðarfirði með hléum frá janúar sl. og fram á sumar. Þættirnir eiga að gerast á Svalbarða þar sem engir alvarlegir glæpir hafa átt sér stað, þar til nú, en eins og kemur fram í myndbandinu þá var útilokað að taka þættina upp á Svalbarða sjálfum þar sem þar er m.a. of kalt og of dimmt. „Við vildum ekki drepa neinn,“ segir framleiðandinn Matthew Bird í myndbandinu og hlær.
Með aðalhlutverk í Fortitude fara Stanley Tucci, Sofie Gråbøl og Christopher Eccleston. Íslenski leikarinn Björn Hlynur Haraldsson fer einnig með hlutverk í þáttunum, sem verða alls 12 talsins. Um 70 Íslendingar unnu að gerð þáttanna við tökur á Austurlandi.
Kíktu á myndbandið hér fyrir neðan: