Fyrsta stiklan er komin fyrir myndina sem áður hét Can A Song Save Your Life? en heitir núna Begin Again, og er með þeim Mark Ruffalo og Keira Knightley í aðalhlutverkum. Myndin var sýnd á kvikmyndahátíðinni í Toronto sl. haust og verður sýnd á Tribeca kvikmyndahátíðinni í New York, sem hefst í apríl.
Sjáðu stikluna hér fyrir neðan:
Myndin fjallar um Dan, yfirmann í hljómplötufyrirtæki sem er búinn að missa vinnuna, en fær nýtt tækifæri í lífinu þegar hann hittir Gretta, sem er sagt upp af kærastanum þegar hann gerir stóran hljómplötusamning. Gretta er einnig tónlistarmaður og Dan vill gera hljómplötu með henni.
Aðrir leikarar eru m.a. Adam Levine, dómari í The Voice og söngvari hljómsveitarinnar Maroon 5, sem leikur kærastann, Hailee Steinfeld, James Corden, Catherine Keener og fyrrum The Voice kollegi Levine, CeeLo Green.
Myndin verður frumsýnd í almennum sýningum í Bandaríkjunum þann 4. júlí nk.