Það var sannkölluð Star Wars stemning bæði í Smárabíó um opnunarhelgina á The Mandalorian and Grogu og á sérstakri forsýningu í Sambíóunum í Kringlunni þriðjudaginn 19. maí þegar meðlimir úr 501st Legion og íslenska hópnum 501st Icelandic Garrison mættu í glæsilegum búningum og vöktu mikla athygli gesta.
501st Legion mætti á svæðið
Mikil stemning skapaðist á báðum viðburðum þar sem gestir fengu tækifæri til að hitta karaktera úr Star Wars heiminum, taka myndir og upplifa aðeins meira en hefðbundna bíóferð. Meðal þeirra sem sáust á svæðinu voru Mandalorian og Grogu ásamt fleiri kunnuglegum karakterum úr Star Wars heiminum.
501st Legion eru alþjóðleg sjálfboðasamtök Star Wars aðdáenda sem eru þekkt fyrir ótrúlega nákvæma búninga og þátttöku á viðburðum víða um heim. Á Íslandi hefur hópurinn byggt upp öflugt samfélag aðdáenda og hefur reglulega tekið þátt í viðburðum tengdum kvikmyndum og góðgerðarmálum.
Nýja myndin The Mandalorian and Grogu hefur einnig farið vel af stað erlendis og þénaði myndin yfir 160 milljónir dala á fyrstu helgi sinni á heimsvísu samkvæmt erlendum miðlum. Myndin heldur áfram sögu Din Djarin og Grogu og byggir á vinsælu Disney+ þáttunum The Mandalorian.
Hér fyrir neðan má sjá myndir frá forsýningunni í Sambíóunum Kringlunni og opnunarhelginni í Smárabíó.

Star Wars: The Mandalorian and Grogu 2026
Hið illa keisaraveldi er fallið og stríðsherrar þess eru á víð og dreif um vetrarbrautina. Nýja lýðveldið er nýgræðingur sem vinnur að því að vernda allt sem uppreisnin barðist fyrir og hefur fengið til liðs við sig…

The Mandalorian 2019
After the fall of the Galactic Empire, lawlessness has spread throughout the galaxy. A lone gunfighter makes his way through the outer reaches, earning his keep as a bounty hunter.
Myndir frá forsýningunni í Sambíóunum Kringlunni



































Myndir frá opnunarhelgi í Smárabíó



















Heimildir
Collider – The Mandalorian and Grogu’ Recovers Reported Budget in Just 1 Weekend







