Sylvester Stallone, aðalsprautan í The Expendables hasarmyndunum, lýsti því yfir á Twitter síðu sinni í dag að Wesley Snipes væri kominn á leikaralistann fyrir þriðju Expendables myndina. „Wesley Snipes is BACK!!!! … …with US,“ segir Stallone, eða í lauslegri í íslenskri þýðingu: „Wesley Snipes er kominn aftur!!!!! … … til OKKAR.“
Fátt er meira á þessu tísti Stallone að græða um Snipes, en Stallone hefur verið að „stríða“ fylgjendum sínum á Twitter með ýmiss konar tísti, eins og til dæmis möguleikanum á að Mel Gibson leikstýri þriðju myndinni, en óljóst er hve mikil alvara er að baki þessum orðum Stallone.
Ef allt þetta er satt og rétt sem Stallone segir um Snipes, þá mun hann bætast í góðan hóp staðfestra leikara í myndinni, en Jet Li, Jason Statham, Sylvester Stallone og nýliðinn Jackie Chan eru þar á meðal.
Búist er við að tökur á myndinni hefjist síðar á þessu ári.