Norska kvikmyndin Sentimental Value hlýtur Kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs 2026. Myndin varð hlutskörpust úr hópi sex norrænna kvikmynda, þar á meðal íslensku myndarinnar Ástin sem eftir er eftir Hlyn Pálmason.

Verðlaunin hljóta leikstjórinn og handritshöfundurinn Joachim Trier, handritshöfundurinn Eskil Vogt og framleiðendurnir Maria Ekerhovd og Andrea Berentsen Ottmar. Verðlaunaféð nemur 300.000 dönskum krónum og skiptist jafnt á milli leikstjóra, handritshöfunda og framleiðenda.

Eins og segir í tilkynningu vill ráðið með þessu leggja áherslu á það að kvikmyndagerð er samvinnuverkefni þessara lykilaðila. Verðlaunaafhending Norðurlandaráðs fer fram 27. október og verður henni miðlað á norden.org.

Verðlaunagripirnir, sem bera heitið Norðurljós (Nordlys), verða afhentir við athöfnina. Í norrænu kvikmyndadómnefndinni sátu Jacob Ludvigsen (Danmörku), Jan Berg Jørgensen (Færeyjum), Jóna Finnsdóttir (Íslandi), Anne Gjelsvik (Noregi), Jonas Holmberg (Svíþjóð) og Marjo Pipinen (Finnlandi), sem jafnframt var formaður nefndarinnar. Dómnefndin var einróma um að að Joachim Trier og samstarfsfólk hans hefðu skapað eitt sígildra verka norrænnar kvikmyndagerðar.

Sentimental Value 2025
Tvær systur snúa aftur á æskuheimili sitt þar sem þær hitta föður sinn sem eitt sinn var frægur kvikmyndaleikstjóri. Hann býður annarri þeirra aðalhlutverk í nýrri kvikmynd ... og þá breytist allt.
Rökstuðningur dómnefndar: Kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs þetta árið hlýtur auðug, þroskuð og margslungin kvikmynd um stór viðfangsefni á borð við fjölskylduna, mannkynssöguna, merkingu heimilis og möguleika listarinnar. Myndin sækir innblástur í evrópska kvikmyndahefð sjöunda og áttunda áratugar 20. aldar en er þó ekki gamaldags. Joachim Trier leikstjóri hefur skapað verk sem einkennist af kvikmyndalegri hljómfegurð, sem nýtir sér fjölda frásagnarbragða og sjónrænna hugmynda og þar sem allir þræðir koma á endanum saman í veigamikla heildarmynd. Sentimental Value er kvikmynd með marglaga frásögn þar sem hver sekúnda virðist þrungin merkingu, og sem heldur áfram að vaxa í hvert sinn sem horft er á hana. Traust handrit, glæsileg kvikmyndataka og sterk frammistaða allra leikara í burðarhlutverkum gera höfundum myndarinnar kleift að sýna kvikmyndagerðarlistina í meinhæðnu ljósi og draga jafnframt upp skarpskyggna mynd af flóknum fjölskyldutengslum. Með Sentimental Value hafa Trier og félagar skapað sitt þroskaðasta verk til þessa og þróað kvikmyndalegt tungutak sem gerir að verkum að áhorfendur geta upplifað söguna bæði á persónulegum og algildum nótum.
Tekjuhæsta norska kvikmynd allra tíma á alþjóðamarkaði
Sentimental Value er orðin tekjuhæsta norska kvikmynd allra tíma utan Noregs. Myndin hlaut lykilfjármögnun frá Nordisk Film & TV Fond og hefur hlotið fjölda alþjóðlegra verðlauna og viðurkenninga. Auk leikstjóra, handritshöfunda og framleiðenda, sem hljóta Kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs 2026, kemur fjölþjóðlegur hópur framúrskarandi listafólks að myndinni. Þar á meðal eru norsku leikkonurnar Renate Reinsve og Inga Ibsdotter Lilleaas, sænski leikarinn Stellan Skarsgård, bandaríska leikkonan Elle Fanning, kvikmyndatökumaðurinn Kasper Tuxen, danski klipparinn Olivier Bugge Coutté og pólska tónskáldið Hania Rani. Öll hafa þau hlotið viðurkenningar fyrir framlag sitt til velgengni myndarinnar. Joachim Trier hlýtur verðlaunin í annað sinn Joachim Trier og Eskil Vogt hlutu fyrst Kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs árið 2016 fyrir myndina Louder than Bombs.
Framleiðendurnir Maria Ekerhovd og Andrea Berentsen Ottmar hljóta verðlaunin nú í fyrsta sinn.
Kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs Kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs voru fyrst veitt árið 2002 og hafa verið afhent árlega frá árinu 2005. Þau eru meðal virtustu menningarverðlauna Norðurlanda og eru veitt norrænni leikinni kvikmynd eða heimildamynd sem hlotið hefur dreifingu í kvikmyndahúsum. Grænland sendi ekki inn kvikmynd til verðlaunanna árið 2026.
Alls voru sex kvikmyndir tilnefndar í ár, fimm leiknar myndir og ein heimildamynd. Aðrar tilnefndar kvikmyndir voru:
Danmörk: Beginnings (Begyndelser)m Færeyjar: Biritam, Finnland: A Light That Never Goes Out (Jossain on valo joka ei sammu), Ísland: The Love That Remains (Ástin sem eftir er), Svíþjóð: Kevlar Soul (Kevlarsjäl).
Af þessu tilefni stóðu yfir sérstakar sýningar á tilnefndum kvikmyndum í Bíó Paradís dagana 15.–18. október sl. Þar gafst kvikmyndaunnendum einstakt tækifæri til að horfa á allar tilnefndar kvikmyndir, hitta kvikmyndagerðarfólk og taka þátt í samtali um norræna kvikmyndagerð en viðburðurinn var haldinn í samstarfi við Stockfish kvikmynda- og bransahátíð.





