Roby Rose, úr sjónvarpsþáttunum Orange Is The New Black, hefur bæst við leikaraliðið í John Wick 2.
Tökur á spennumyndinni eru nýhafnar í New York og er leikstjórinn Chad Stahelski að ganga frá síðustu púslunum í spilið.
Samkvæmt Deadline hafa Riccardo Scamarcio og Peter Stormare einnig bæst í hópinn. John Leguizamo, Tom Sadowski, Bridget Moynahan og Lance Reddick verða sömuleiðis á sínum stað en þau léku öll í fyrri myndinni.
Aðalleikarinn Keanu Reeves, Common og Ian McShane höfðu áður samþykkt að leika í John Wick 2.