Hver eru rómantískustu atriði kvikmyndasögunnar? Breska blaðið The Independent fékk nokkra sérfræðinga í þeim efnum til að velja uppáhalds rómantíska atriði sitt í bíómynd og meðal þeirra atriða sem nefnt var, var atriðið með þeim Kate Winslet og Leonardo DiCaprio þegar Winslet kyssir Leo bless að eilífu í stórmyndinni Titanic.
Annar nefndi áramótaatriðið úr When Harry Met Sally þegar Harry segist elska Sally, en sá álitsgjafi telur myndina vera bestu rómantísku gamanmynd allra tíma.
Enn annar nefndi atriðið úr Wall-E þegar vélmennið fer með Eve heim til sín eftir sandstorm og sýnir henni jurt. Hún grípur jurtina, og þar sem markmiðinu var þar með náð, fer hún í óvirkan ham og eina „lífsmarkið“ er grænt blikkandi ljós. „Það hvernig Wall-E reynir í örvæntingu að ná henni úr þessum ham er mjög átakanlegt.“
Sjáðu listann í heild sinni með því að smella hér.