Rómantík hjá Kruger

Diane Kruger hefur verið ráðin í aðalhlutverk rómantísku gamanmyndarinnar 5 to 7. Kruger, sem  sló í gegn í Inglorious Basterds, mun samkvæmt Deadline leika á móti Anton Yelchin í þessu fyrsta leikstjóraverkefni Victors Levin sem hefur getið sér gott orð fyrir Mad Men-þættina.

5 to 7 fjallar um efnilegan rithöfund sem kynnist eiginkonu fransks sendiráðsfulltrúa. Tökur á myndinni eiga að hefjast í febrúar á næsta ári.