Fyrsta stiklan er komin út fyrir nýjustu mynd gamanleikkonunnar Melissa McCarthy, The Boss.
Myndin fjallar um athafnakonuna Michelle, persónu sem McCarthy bjó til þegar hún vann með Groundlings grínhópnum í Los Angeles fyrir um áratug síðan.
Michelle er auðugasta kona Bandaríkjanna, en er send í fangelsi fyrir innherjaviðskipti. Þegar hún sleppur úr grjótinu þá reynir hún að ná sér aftur á strik, en það erfitt þegar þú varst búin að stíga á tær allra í kringum þig þegar þú varst að brjóta þér leið á toppinn í fyrra skiptið.
Aðrir helstu leikarar eru Kristen Bell, Peter Dinklage, Kathy Bates, Kristen Schaal og Timothy Simons.
Leikstjóri myndarinnar er eiginmaður McCarthy, Ben Falcone, rétt eins og í mynd McCarthy frá því í fyrra, Tammy.
Myndin kemur í bíó í Bandaríkjunum 8. apríl nk.
Sjáðu stikluna hér fyrir neðan: