Kvikmyndahátíðin Reykjavík Shorts & Docs verður haldin í ellefta sinn dagana 9.-16. maí næstkomandi. Hátíðin sérhæfir sig í bæði erlendum og innlendum stuttmyndum og heimildarmyndum og verða myndirnar sýndar í Bíó Paradís, Kex Hostel og í Slippbíó.
Rétt í þessu frumsýndi hátíðin stiklu og á næstu dögum verða tilkynntar þær myndir sem verða á hátíðinni.
Frekari upplýsingar um Reykjavík Shorts & Docs er hægt að nálgast hér.