Gagnrýni eftir:
Eat Pray Love
0 af 0 fannst gagnrýnin hjálpleg
Tímasóun Mér fannst það fullkomin tímasóun að sjá þessa mynd. Hef ekki lesið bókina en hef heyrt að hún sé mun betri. Myndin er of mikið "Hollywood". Í raun er sagan búin eftir fyrstu 15 mínúturnar. Julia Roberts er ekki rétta leikkonan í þetta aðalhlutverk. Hún er of settleg, ráðsett og lífsreynd fyrir hlutverkið. Náttúrufegurð Ítalíu og glæsilegt umhverfið í Róm fær að njóta sín en alltof miklum tíma er eytt í að sýna ...mat ! Þegar Julia Roberts fékk sér enn einn pastaréttinn sem hún rólega borðar án sérstakra tilþrifa þá nennti ég þessu ekki lengur og gekk út af myndinni.
Jóhannes
0 af 0 fannst gagnrýnin hjálpleg
Frábær fjölskyldumynd Við fórum öll fjölskyldan með fylgdarliði alls 7 manns saman að sjá myndina Jóhannes. Aldursbilið var frá 12 ára til 70 ára og allir skemmtu sér konunglega. Myndin Jóhannes er í fyrsta skipti í alltof langan tíma sem sannkölluð skemmtun býðst í bíó sem höfðar til allra á öllum aldri. Í gegnum myndina skín starfsgleði og bjartsýni sem allir þurfa einmitt á að halda á þessum síðustu tímum. :)
Ég skil enganvegin skrif Tómasar Rizzo hér að framan. Hann hlýtur að hafa farið að sjá allt aðra mynd en við.