Ég horfði á þessa á netinu í gær. Zeitgeist málar skrattann á vegginn og sýnir okkur verstu mögulega útgáfu af heiminum. Maður getur bara vonað að þetta sé ekki allt satt. Myndin fer…
Ég horfði á þessa á netinu í gær. Zeitgeist málar skrattann á vegginn og sýnir okkur verstu mögulega útgáfu af heiminum. Maður getur bara vonað að þetta sé ekki allt satt. Myndin fer mjög mikið úr einu og yfir í allt annað. Hún spyr mikilvægra spurninga en vantar fókus. Þau svör sem eru veitt eru áróðurskennd og eru ekki vel rökstudd. Samt er hún áhugaverð og skemmtileg. Hún gerir það sem heimildamyndir eiga að gera, vekja fólk til umhugsunar. Myndin fjallar um Bandaríkin en það er minnir merkilega mikið á íslenskar fréttir um þessar mundir. Horfið á hana og reynið að dæma sjálf hvað er rétt í þessu.
Myndin talar mikið um að atburðir eins og 9/11 og Pearl Harbor hafi verið skipulagðir beinlínis af Bandarískum stjórnvöldum til þess að koma af stað þeirri atburðarrás sem þeir vildu. Þegar maður horfið á svona myndir er auðvelt að hrífast með og trúa hverju orði, kannski af því að mann langar til að trúa. Auðvitað er mikil spilling í heiminum og hræðilegir hlutir gerast á hverjum degi. Maður getur samt ekki trúað hverju sem er án þess að ásakandi fái að svara fyrir sig. Það er tala um mátt sjónvarpsins til að sannfæra okkur um hvað sem er...og svo reynir myndin að gera nákvæmlega það sama. Jæja, þetta er að verða ágætt.
Það eru sýndir nokkrar klippur úr Network (snilldar mynd). Ansi magnað hvað það hittir beint í mark.
Hér er myndin (hægra megin):
http://www.zeitgeistmovie.com/
Það er komið framhald af myndinni sem er að finna á sömu síðu.