Living Without Money

Living Without Money (2000)

52 mín2000

"Ég hafði allt til alls, ég átti hús og hafði alið upp tvö börn.

Hvað fannst þér?
  • ★
  • ★
  • ★
  • ★
  • ★
Viltu vinna bíómiða? Taktu þátt í Bíómiðapottinum

Skráðu þig inn og gefðu nokkrum myndum einkunn til að fá persónulega einkunn.

Skráðu þig inn →

Söguþráður

"Ég hafði allt til alls, ég átti hús og hafði alið upp tvö börn. Ég gaf það allt frá mér." Heimildamyndin Líf án peninga er saga Heidemarie Schwermer, 68 ára þýskrar konu sem tók þá ákvörðun fyrir 14 árum að hætta alfarið að nota peninga. Hún sagði upp íbúðinni, gaf allar sínar eigur og hélt engu nema einni ferðatösku sem hún fyllti af fötum. Þetta var ákvörðun sem átti eftir að hafa dramtísk áhrif á allt hennar líf. Í dag, 14 árum síðar, dregur hún fram líf sitt nánast án peninga og er frjálsari og sjálfstæðari sem aldrei fyrr. Myndin fylgir Heidemarie í gegnum hversdaginn og sýnir hvernig hún fer að því að hafa ofan í sig og á, hvernig hún ferðast á milli staða og finnur sér samastað til að búa á. Auk þess að sýna hvernig Heidemarie tekst á við þessar daglegu áskoranir kynnumst við heimspekilegri sýn hennar og ástæðunum fyrir því að hún tók þennan valkost í lífinu. Myndin vekur upp spurningar um áhrif peninga á líf okkar, hugsun, heilsu og umhverfi og fjallar á gagnrýninn hátt um efnishyggju og neyslusamfélag.

Aðalleikarar

Álit notenda

Engin álit ennþá. Vertu fyrstur til að skrifa álit!

Umfjöllun af öðrum miðlum

Engar umfjallanir ennþá. Vertu fyrstur til að bæta við!