Leiklestur - Unexplored Interior (2014)
Sunnudaginn 11.
Skráðu þig inn og gefðu nokkrum myndum einkunn til að fá persónulega einkunn.
Skráðu þig inn →
Öllum leyfðSöguþráður
Sunnudaginn 11. maí kl. 16:00 gerist sögulegur viðburður í Bíó Paradís, Kigali í Rúanda og Gyðingasafninu í New York. Þá munu landamæri verða máð út og gestir munu njóta leiklesturs á nýju verki Jay O. Sanders Unexplored interior. Verkið verður flutt samtímis á þessum þremur stöðum í tilefni af því að 20 ár eru nú liðin frá því að þjóðarmorðin í Rúanda hófust. Unexplored interior fylgir eftir gömlum Tutsi sögumanni, sem bíður okkur að ganga með sér um einn fegursta stað jarðar – Rúanda. Hann leiðir áhorfandann inn í sannleikann um sögu landa hans og þjóðar sem hann ann. Fimmtán leikarar taka þátt í leiklestrinum meðal annarra Fritz Weaver, Sharon Washington, Arthur French, Michael McKean og Owiso Odera. Frásagnarháttur leikritsins er sá elsti í veröldinni, söguformið, en verkinu verður miðlað með nýjustu samskiptatækni með hjálp Google. Hópur fimmtán atvinnuleikara mun endurvekja þessa sögu, sögu hörmunganna í Rúanda og hjálpa til við að halda henni á lofti. Eftir sýningu leikritsins svara aðstandendur sýninganna spurningum og boðið verður upp á Kigali kaffi.
Aðalleikarar
Álit notenda
Skráðu þig inn til að skrifa álit
InnskráEngin álit ennþá. Vertu fyrstur til að skrifa álit!
Umfjöllun af öðrum miðlum
Engar umfjallanir ennþá. Vertu fyrstur til að bæta við!

