Estranged Passengers: In Search of Viktor Ullmann (2003)
Estranged Passengers: In Search of Viktor Ullmann fjallar um líf og örlög eins hinna þekktu fanga í Theresienstadt fangabúðunum í Tékklandi; tónskáldsins og stjórnandans Viktors Ullmanns.
Skráðu þig inn og gefðu nokkrum myndum einkunn til að fá persónulega einkunn.
Skráðu þig inn →Söguþráður
Estranged Passengers: In Search of Viktor Ullmann fjallar um líf og örlög eins hinna þekktu fanga í Theresienstadt fangabúðunum í Tékklandi; tónskáldsins og stjórnandans Viktors Ullmanns. Saga hans snertir einnig viðfangsefni seinni myndarinnar. Eftir að flóðgáttir sturlunar nasismans opnuðust í janúar 1942, þegar ákveðið var að hefja kerfisbundin fjöldamorð á evrópskum gyðingum, tóku að berast einstaka fregnir til Vestur-Evrópu af ódáðaverkum í austri. Þýsk stjórnvöld brugðust við með skipulegum áróðri til að fullvissa almenning um að ekkert væri athugavert við svokallaða “búsetuflutninga” gyðinga austur á bóginn. Í þessum áróðri höfðu gettófangabúðirnar í Theresienstadt sérstöðu. Þar var var eign og notkun bóka og hljóðfæra leyfileg og á meðal fanga þar var hámenntað tónlistarfólk, sem hélt áfram að semja tónlist og stóð fyrir flutningi á stórum og smáum verkum við afar erfiðar aðstæður. Þannig var haldið uppi menningarlífi, þrátt fyrir þrengingar og nauðungarflutninga sem ítrekað hjuggu skörð í hóp tónlistarfólkins. En menningarlífið í Theresienstadt var líka þáttur í áróðri nasista. Theresienstadt var sýnd erlendum gestum sem dæmigert gyðingaaðsetur með sjálfsforræði, þar sem íbúarnir nytu góðrar aðhlynningar og fjölþætts menningarlífs. Fyrir slíkar heimsóknir var varið mánuðum í að fegra gettóið og gestirnir voru undir nákvæmu eftirliti til að koma í veg fyrir að þeir gætu komist að hinu sanna um, hvað raunverulega fór þar fram. Blekkingarnar tókust algerlega, grunlausir gestirnir skrifuðu síðan jákvæðar lýsingar á allri aðstöðu í gettóinu. Á meðan héldu nauðungarflutningarnir til Treblinka, Auschwitz-Birkenau og annarra útrýmingabúða áfram. Tékkneski gyðingurinn og tónskáldið Viktor Ullmann. Ullmann var austurrískur ríkisborgari af gyðingaættum, hafði sótt framhaldsskóla í Vín og hafið feril sinn sem tónskáld þar undir áhrifum frá Arnold Schönberg. Á fjórða tug aldarinnar bjó Ullmann í Prag, þar sem hann starfaði með Alexander Zemlinsky. Eftir hernám Tékklands í mars 1939 var Ullmann í bráðri hættu. Allar tilraunir hans til að flytjast úr landi (meðal annars til Íslands) mistókust, en tveimur barna hans var bjargað af Englendingnum Nicholas Winton, en hann er viðfangsefni seinni myndarinnar. Ullmann var fluttur til Theresienstadt 1942, þar sem hann varð strax mikilvægur þáttakandi í tónlistarlífinu. Hann samdi fjölda stórra og smárra verka í Theresienstadt, sem flest hafa varðveist. Ullmann var, ásamt þeim sem eftir voru af fjölskyldu hans (yngsta barn hans dó úr vannæringu í Theresienstadt) og fjölda annars lista- og menningarfólks, fluttur til Auschwitz-Birkenau í október 1944, þar sem þau voru myrt í gasklefunum.
Aðalleikarar
Álit notenda
Skráðu þig inn til að skrifa álit
InnskráEngin álit ennþá. Vertu fyrstur til að skrifa álit!
Umfjöllun af öðrum miðlum
Engar umfjallanir ennþá. Vertu fyrstur til að bæta við!

