Children of War (2009)
Stríðsbörnin er mynd um hrikaleg örlög barna sem hneppt hafa verið í ánauð og neydd til að fremja voðaverk, af einum illræmdasta stríðsglæpamanni sem gengur laus.
Skráðu þig inn og gefðu nokkrum myndum einkunn til að fá persónulega einkunn.
Skráðu þig inn →Söguþráður
Stríðsbörnin er mynd um hrikaleg örlög barna sem hneppt hafa verið í ánauð og neydd til að fremja voðaverk, af einum illræmdasta stríðsglæpamanni sem gengur laus. Fylgst er með því í myndinni hvernig starfsmenn á heimili sem Belgíumenn reka í Úganda hjálpa börnum sem frelsuð hafa verið úr ánauð, að horfast í augu við örlög sín. Þau segja frá lífi sínu en sum hafa verið neydd til að myrða foreldra sína, drepa önnur börn og verið misnotkuð kynferðislega. Í einu magnaðasta atriði myndarinnar stendur stúlka augliti til auglitis við roskinn mann sem hún hafði verið neydd til að þjóna kynferðislega. Svokallaður andspyrnuher Drottins í Úganda undir forystu stríðsglæpamannsins Joseph Kony er talinn hafa rænt 35 þúsund börnum í Úganda og neytt þau til fylgis við sig. Talið er hundrað þúsund manns hafi látist í þessum hernaði og hálf önnur milljón orðið að flýja heimili sín á þeim tveimur áratugum sem Kony og böðlar hans herjuðu á norðurhluta Úganda. Kony og felagar hans hafa nú flúið land og halda til á landamærum Úganda, Kongó, Mið-Afríkulýðveldisins og Súdans. Handtökuskipun var gefin út á hendur Kony og fjórum fylgismönnum hans af hálfu Alþjóðlega glæpadómstólsins. Bandaríkjastjórn hefur lýst hann hryðjuverkamann og Barack Obama, forseti Bandaríkjanna hét því í lok nóvember á síðasta ári að hafa hendur í hári hans.
Aðalleikarar
Álit notenda
Skráðu þig inn til að skrifa álit
InnskráEngin álit ennþá. Vertu fyrstur til að skrifa álit!
Umfjöllun af öðrum miðlum
Engar umfjallanir ennþá. Vertu fyrstur til að bæta við!


