BANFF fjallakvikmyndahátíð - Seinna kvöldið (2013)
"Íslenski alpaklúbburinn kynnir."
Íslenski alpaklúbburinn í samstarfi við Bíó Paradís, Íslenska fjallaleiðsögumenn og 66° Norður kynna hina árlegu BANFF fjallakvikmyndahátíð Þann 1.
Skráðu þig inn og gefðu nokkrum myndum einkunn til að fá persónulega einkunn.
Skráðu þig inn →
Öllum leyfðSöguþráður
Íslenski alpaklúbburinn í samstarfi við Bíó Paradís, Íslenska fjallaleiðsögumenn og 66° Norður kynna hina árlegu BANFF fjallakvikmyndahátíð Þann 1. og 2. maí. Verður hátíðin haldin í Bíó Paradís og hefjast sýningar kl. 20:00 Hægt er að kaupa miða á midi.is en til að fá betra verð á bæði kvöldin mælum við sterklega með að mæta í miðasöluna á Hverfisgötu til að tryggja sér miða. Á hátíðinni verða sýndar klifurmyndir, skíðamyndir, hjólamyndir og kayakmyndir svo eitthvað sé nefnt. Mikil keyrsla og húmor hafa fylgt þessum sýningum í gegnum árin og má segja að í boði séu um 4 klukkustundir af fjöri á hátíð sem sameinar iðkendur og aðdáendur jaðarsports á Íslandi. Almennt: Eitt kvöld: 1500 kr. - Tvö kvöld: 2200 kr.* Félagsmenn Ísalp: Eitt kvöld: 1300 kr.* - Tvö kvöld: 2000 kr.* * Ef kaupa á miða fyrir bæði kvöldin eða fá klúbbmeðlima afslátt þá þarf að kaupa miðana í miðasölu Bíós Paradísar, Hverfisgötu 54. MIÐVIKUDAGURINN 1.MAÍ KL. 20:00 The Gimp monkeys Hvað hefur 4 fætur, 3 höfuð og 5 hendur? Klifrarar sem ætla að vera fyrsta fatlaða teymið sem fer upp hinn fræga vegg El Capitan! Mjög skemmtileg og hvetjandi mynd. Tegund: Klifur Lengd: 8 mín Strength in numbers Stuttmynd um hjólasportið eins og það gerist best, downhill og stökk eru meðal efnis. Tegund: Fjallahjól Lengd: 15 mín Crossing the ice Tveir Ástralskir ferðalangar ákveða að ganga fyrstir á suðurpólinn án mikillar ferðakunnáttu og til baka en lenda í óvæntu kapphlaupi við norðmann sem stefnir á sama markmið. Tegund: Ævintýri Lengd: 44 mín Hlé The Denali experiment Frægir fjallamenn og skíðamenn sameinast. Sage Cattabriga-Alosa og Lucas Debari sem eru frægir skíða- og brettamenn slást í för með Conrad Anker ofl. um að klifra Denali og skíða svo niður. Tegund: Fjallaskíði Lengd: 16 mín Lacon de Catalonia Hjólastökk, stutt mynd um stökk og trikk bæði á fjallahjólum og mótorkross hjólum í brautum. Tegund: Hjól Lengd: 5 mín Wanna ride? Skíðað niður há fjöll með fallhlíf á bakinu, farið fram af klettum, milli steina og allt sem fjallið hefur uppá að bjóða. Tegund: Skíða paraglide Lengd: 3 mín Reel rock 7: La Dura Dura Chris Sharma þarf vart að kynna fyrir neinum sem eru í klifursportinu en hann hefur um árabil verið að finna og leggja erfiðustu klifurleiðir heims. Tegund: Klifur Lengd: 28 mín FIMMTUDAGURINN 2.MAÍ KL. 20:00 Industrial Revolutions Danny MacAskill hefur fundið nýjan leikvöll á hjólinu sínu en að þessu sinni leggur hann brautir á yfirgefnu iðnaðarsvæði þar sem nóg af járni er til staðar. Tegund: Hjól Lengd: 5 mín Being there Fjallaskíðun og stökk hjá frændum okkar í Noregi. Lofoten og nágrenni koma m.a. við sögu. Tegund: Skíði Lengd: 14 mín Reel rock 7: Wide Boyz Off-width klifur er þegar sprungur eru of breiðar til að geta notað eina hendi í einu og eru sumir búnir að þróa með sér tækni til að takast á við slík verkefni. Tegund: Klifur Lengd: 12 min On thin sea ice 2 Sumir leika sér að eldinum, aðrir leika sér að ísnum. Tegund: Skautar Lengd: 2 min The Dream factory Teton Gravity Research (TGR) hafa um árabil búið til skemmtilegar og flottar extreme skíðamyndir. Tegund: Skíði Lengd: 27 min Hlé Fow hunters Nokkrir kayakræðarar fara saman til Nýja Sjálands að róa niður fossa og straumvatn. Tegund: Kayak Lengd: 9 mín The Rollerman Danny Strasser er mættur aftur til leiks og er að þessu sinni búinn að útbúa sinn eigin “hjólagalla”. Tegund: Ísklifur Lengd: 3 mín On the road – Skiing the void Frásögn um fjallaskíðun í suður Ameríku. Tegund: Skíði/saga Lengd: 7 mín Lily shreds trailside Suma vini er einfaldlega ekki hægt að skilja eftir þegar farið er í hjólatúr. Tegund: Hjól Lengd: 3 mín Reel rock 7: Honnold 3.0 Alex Honnold þarf vart að kynna Klifrurum en hann þarf alltaf að toppa sjálfan sig af og til. Tegund: Fjölbreytt Lengd: 33 mín
Aðalleikarar
Álit notenda
Skráðu þig inn til að skrifa álit
InnskráEngin álit ennþá. Vertu fyrstur til að skrifa álit!
Umfjöllun af öðrum miðlum
Engar umfjallanir ennþá. Vertu fyrstur til að bæta við!

