Collaborators - Leikrit

Collaborators - Leikrit (2011)

"Hættulegur staður fyrir kímnigáfu og enn hættulegri fyrir frelsisþrá."

3 klst 15 mín2011

Nýtt leikrit eftir John Hodge.

Hvað fannst þér?
  • ★
  • ★
  • ★
  • ★
  • ★
Viltu vinna bíómiða? Taktu þátt í Bíómiðapottinum

Skráðu þig inn og gefðu nokkrum myndum einkunn til að fá persónulega einkunn.

Skráðu þig inn →

Söguþráður

Nýtt leikrit eftir John Hodge. Moskva árið 1938. Hættulegur staður fyrir kímnigáfu og enn hættulegri fyrir frelsisþrá. Mikhaíl Búlgakov býr á meðal andófsmanna og er hundeltur af leynilögreglunni en hefur bæði kímnigáfu og ríka frelsisþrá. En síðan er honum boðinn eitraður kaleikur: Hann er beðinn um að semja leikrit um Stalín í tilefni sextugsafmælis hans. Leikritið er innblásið af sögulegum atburðum og býður upp á súrrealískt ferðalag inn í hugarheim rithöfundarins sem tapar sér í ógnvekjandi en skuggalega fyndnu sambandi við almáttugt viðfangsefni leikverks síns. ,,Það er auðvelt að drepa óvini mína. Helsta áskorunin er að breyta hugsunarhætti þeirra og ná stjórn á huga þeirra. Ég tel mig hafa stjórnað huga þínum ansi vel. Seinna meir get ég sagt, Búlgakov? Já, við þjálfuðum jafnvel hann til að láta vel að stjórn. Hann gafst upp. Hann sá ljósið. Við brutum hann á bak aftur og getum gert það við hvern sem er. Þetta er maður gegn skrímsli, Mikhaíl. Skrímslið sigrar alltaf.“ Þetta vægðarlausa nýja leikrit Johns Hodge lýsir banvænum eltingarleik kattarins og músarinnar og rýnir í þær skelfilegu málamiðlanir og niðurlægingar sem listamaðurinn þarf að þola frá hendi þeirra sem valdið hafið. Alex Jennings fer með hlutverk Búlgakovs og Simon Russell Beale leikur Stalín.

Aðalleikarar

Álit notenda

Engin álit ennþá. Vertu fyrstur til að skrifa álit!

Umfjöllun af öðrum miðlum

Engar umfjallanir ennþá. Vertu fyrstur til að bæta við!