Jöklar ( netleikhús) (2011)
Jöklar er netleikhúsverk sem nýtir sér veraldarvefinn sem yrkisefni og leikrými.
Skráðu þig inn og gefðu nokkrum myndum einkunn til að fá persónulega einkunn.
Skráðu þig inn →Söguþráður
Jöklar er netleikhúsverk sem nýtir sér veraldarvefinn sem yrkisefni og leikrými. Verkið sem segir eina sögu í sex birtingarmyndum er leikið á milli landshluta og brýst út í gegnum veraldarvefinn inn í raunveruleg rými á fjórum stöðum á Íslandi og yfir hafið til Danmerkur þa sem fimmta leiksýningin fer fram. Verkið er leikið af fimm leikurum sem staddir eru á fjórum stöðum á Íslandi og einum í Árósum í Danmörku. Staðirnir á Íslandi eru Reykjavík, Ísafjörður, Hjalteyri og Seyðisfjörður. Á hverjum stað fyrir sig upplifa áhorfendur söguna útfrá þeirri persónu sem stendur frammi fyrir þeim en á netinu bætist við sjötta birtingarmyndin en þar geta áhofendur fylgst með fléttunni eins og hún leggur sig í beinni útsendingu. Persónurnar/leikararnir hafa samskipti í gegnum veraldarvefinn þar sem samskiptin taka á sig ýmsar myndir frá bréfaskriftum til samskipta í fullri mynd þar sem tölvuskjánum er varpað á stóran flöt í rými hvers og eins. Ófeigur, 53 ára gamall fyrrum dansari í hjólastól sem lifir lífi sínu að mestu á netinu þykist hafa fundið allsherjar lausn fyrir þá landa sína sem eiga við hvers kyns andlega erfiðleika að stríða sökum ástandsins í þjóðfélaginu. Hann auglýsir meðferð, sem á rætur sínar að rekja til íhugunarkerfis frá Ástralíu en því hefur hann kynnst í gengum sjálfshjálparsíðuna Glacierworld.net. Til hans leita þrjár persónur sem búa sín í hverjum landshlutanum og eiga allar við einhverskonar getuleysi að stríða. Þær eiga það sammerkt að vera félagslega einangraðar og hafa búið til auka sjálf á veraldarvefnum þar sem þær gefa sig út fyrir að vera annað en þær eru. Verkið er hægt að upplifa hvort heldur með því að sækja leiksýningarnar og/eða fara inn í netleikhúsið www.herbergi408.is og sjá hvernig allar sýningarnar fléttast saman í eina heild á tölvuskjánum. Þegar sýningum lýkur verður unnið gagnvirkt netleikhúsverk og mun vera aðgengilegt á www.herbergi408.is textað á ensku fyrir alþjóðlega gesti netheima.
Aðalleikarar
Álit notenda
Skráðu þig inn til að skrifa álit
InnskráEngin álit ennþá. Vertu fyrstur til að skrifa álit!
Umfjöllun af öðrum miðlum
Engar umfjallanir ennþá. Vertu fyrstur til að bæta við!

