Kynlíf, dóp og kjarnorka

Kynlíf, dóp og kjarnorka (2010)

Fríkaðir fimmtudagar

2010

Páll Óskar sýnir valdar kvikmyndir úr einkasafni sínu, og kokkar fram skrautlegar kvikmyndasýningar einu sinni í mánuði í Bíó Paradís.

Hvað fannst þér?
  • ★
  • ★
  • ★
  • ★
  • ★
Viltu vinna bíómiða? Taktu þátt í Bíómiðapottinum

Skráðu þig inn og gefðu nokkrum myndum einkunn til að fá persónulega einkunn.

Skráðu þig inn →

Söguþráður

Páll Óskar sýnir valdar kvikmyndir úr einkasafni sínu, og kokkar fram skrautlegar kvikmyndasýningar einu sinni í mánuði í Bíó Paradís. Um er að ræða 16mm stuttmyndir sem sýndar voru í amerískum skólum á fjórða til sjöunda áratug síðustu aldar. Hér kennir ýmissa grasa: Kynfræðsla, forvarnarmyndir um kynsjúkdóma, áfengi og eiturlyf, áróðursmyndir um kosti kjarnorkusprengjunnar og leiðbeiningar um hvernig má lifa af kjarnorkustríð. Sumar þessar myndir eru auðvitað sprenghlægilegar, en aðrar hafa staðist tímans tönn, jafnvel þó þær séu orðnar meira en 50 ára gamlar. Til dæmis er lokamyndin kennslumynd um hvernig á að hjálpa konu í barnsnauð. Hún var framleidd yfir lögreglumenn í Californiu og sýnir réttu handtökin við fæðingu barns. Myndin sýnir alvöru fæðingu barns í aftursæti bíls, sem ung verðandi móðir leyfði að yrði kvikmynduð. Kynfræðslumyndirnar voru án efa framleiddar af þeirri einföldu ástæðu að kennararnir sjálfir höfðu annað hvort takmarkaða þekkingu á viðfangsefninu eða þótti óþægilegt að tala um kyníf við börn og unglinga. Þeir létu því filmuna rúlla í stað þess að þurfa að tala sjálfir fyrir framan bekkinn. Myndirnar eru allar sérvaldar af Páli Óskari, og eru allt frá 3-10 mínútur að lengd. Samanlagt eru allar myndirnar alls 90 mínútur að lengd.

Aðalleikarar

Álit notenda

Engin álit ennþá. Vertu fyrstur til að skrifa álit!

Umfjöllun af öðrum miðlum

Engar umfjallanir ennþá. Vertu fyrstur til að bæta við!