Svo lengi sem við lifum (2023)
Beta, eitt sinn efnileg tónlistarkona, finnur sig í ónýtu hjónabandi, ekki verandi sú móðir sem hún vill vera.
Skráðu þig inn og gefðu nokkrum myndum einkunn til að fá persónulega einkunn.
Skráðu þig inn →Söguþráður
Beta, eitt sinn efnileg tónlistarkona, finnur sig í ónýtu hjónabandi, ekki verandi sú móðir sem hún vill vera. Þegar ungur maður flytur inn á heimilið til að hjálpa með barnið og fer að leggja til „daður-verkefni“ fyrir hjónin, er Beta þvinguð til að taka áhættur og stíga aftur inn í lífið.
Þættir
1 þáttaröð · 6 þættir
1Enniskossar og rassskellingar
Beta og Thomas eru í hyldýpi 7 ára sambandskrísu. Andleg heilsa Betu vekur óhug hjá mömmu hennar sem býður fram skapandi lausn á aðstæðum.
2Go big or go home
Nýi heimilisgesturinn hefur kveikt ljós á heimilinu. Kvöldverður með Thomas og vafasömum samstarfsmönnum hans setur allt í uppnám og Beta leitar að aðstoð frá Atla til að reyna að rétta af skútuna.
3Fokking Húsdýragarðurinn
Beta sannfærist að hún sé búin að finna svarið í nýju fjöldkyldumynstri á meðan róður Thomas þyngist í vaxandi undarlegum heimilisaðstæðum. Tilfinningar Atla í garð Betu taka skarpa beygju og óvæntur gestur ýtir Betu fram á ystu nöf.
4Túlípanar, túlípanar, túlípanar...
Beta reynir að setja nýju fjölskylduna sína aftur saman með áhættusömum leik og finnur sig í Hollenskum höndum.
5Úlfar í lambaklæðum
Thomas reddar dagmömmu, Beta gerir uppreisn og geishu-sloppur þvingar parið til að horfast í augu við erfiðar staðreyndir.
- 6
Duga eða drepast...
Beta stendur andspænis öllu því sem hún hræðist mest. Örlög kúbverska klúbbs Thomas ráðast, á meðan Beta fylgir túlípanaslóð á vit nýrra ævitýra og þarf að horfast í augu við afleiðingar gjörða sinna. En er allt orðið of seint?
Aðalleikarar
Álit notenda
Skráðu þig inn til að skrifa álit
InnskráEngin álit ennþá. Vertu fyrstur til að skrifa álit!
Umfjöllun af öðrum miðlum
Engar umfjallanir ennþá. Vertu fyrstur til að bæta við!






