Hristur, ekki hrærður (2025)
Þegar Bjarni Hafþór Helgason var greindur með Parkinson árið 2019 brást hann við tíðindunum með því að snúa vörn í sókn; jók við líkamsræktina og...
Skráðu þig inn og gefðu nokkrum myndum einkunn til að fá persónulega einkunn.
Skráðu þig inn →Söguþráður
Þegar Bjarni Hafþór Helgason var greindur með Parkinson árið 2019 brást hann við tíðindunum með því að snúa vörn í sókn; jók við líkamsræktina og lagði áherslu á að styrkja andlega heilsu sína. Liður í því ferli var að setja á svið tveggja klukkustunda stand up sýningu sem fjallaði um hann sjálfan og fjölskyldu hans með húmor og veikindi í forgrunni. Haldnar voru sjö sýningar fyrir fullu húsi undir heitinu "Hristur ekki hrærður".
Þættir
1 þáttaröð · 4 þættir- 1
Parki og alki
Bjarni Hafþór setti tappann í flöskuna fyrir mörgum árum síðan og hefur höndlað alkóhólismann með æðruleysi í meira en aldarfjórðung. Fyrir 6 árum greindist hann með Parkison og hefur baráttan við þann sjúkdóm reynst kröfuharðari en margt annað sem á daga hans hafa drifið. En með húmorinn að vopni tekst hann á við þetta erfiða verkefni og eru sögur hans af þessum sjúkdómum kostulegar.
- 2
Amma og afi
Uppeldisárin á Húsavík eru Bjarna Hafþóri minnisstæð. Í þessum þætti rifjar hann upp sprenghlægilegar sögur af afa sínum og ömmu og minnist margra ógleymanlegra atvika sem á daga þeirra dreif. Jafnvel í tengslum við erfiðustu sjúkdóma gömlu hjónanna er húmorinn aldrei langt undan.
- 3
Mamma og pabbi
Bjarni Hafþór minnist áranna á Húsavík í einstöku fjölskyldulífi á æskuheimilinu á Grafarbakka þar sem frásagnargleði og kímnigáfa voru allsráðandi. Veikindasögur af ýmsum toga og ótrúleg umgengni föður hans um pillur er meðal þess sem hér er tekið til umfjöllunar með eftirminnilegum hætti.
- 4
Ég og læknar
Samskipti Bjarna Hafþórs við hjúkkur og lækna hafa í reynd verið með einstökum hætti í gegnum tíðina. Hefur hann margoft komið sjálfum sér og sérfræðingum á sjúkrahúsum í miður þægilegar kringumstæður. Í þessum þætti rifjar hann upp fyndnar og vandræðalegar uppákomur í heimsóknum sínum á ýmsar heilbrigðisstofnanir landsins.
Aðalleikarar
Álit notenda
Skráðu þig inn til að skrifa álit
InnskráEngin álit ennþá. Vertu fyrstur til að skrifa álit!
Umfjöllun af öðrum miðlum
Engar umfjallanir ennþá. Vertu fyrstur til að bæta við!

