Brot (2019)
íslensk spennuþáttaröð um rannsóknarlögreglukonuna Katrínu sem rannsakar óvenjulegt morð í Reykjavík.
Skráðu þig inn og gefðu nokkrum myndum einkunn til að fá persónulega einkunn.
Skráðu þig inn →Söguþráður
íslensk spennuþáttaröð um rannsóknarlögreglukonuna Katrínu sem rannsakar óvenjulegt morð í Reykjavík. Það reynist upphafið að óhugnanlegu og flóknu sakamáli og lögreglan fær virtan lögreglumann með dularfulla fortíð, Arnar, til að snúa heim eftir áratuga fjarveru utanlands og aðstoða við rannsókn málsins.
Þættir
1 þáttaröð · 8 þættir
RÚV
1Þáttur 1
Katrín Gunnarsdóttir er metnaðarfull rannsóknarlögreglukona með augastað á stöðu yfirmanns rannsóknardeildarinnar. Þegar eldri karlmaður finnst myrtur við Reykjavíkurhöfn undir óvenjulegum kringumstæðum og Katrín er kölluð á vettvang fer af stað atburðarás sem hún hefur litla stjórn á.
2Þáttur 2
Arnar Böðvarsson er fenginn til landsins til að hjálpa lögreglunni í Reykjavík við rannsókn á morðunum þar sem grunur leikur á að raðmorðingi gæti verið á ferðinni. Arnar er dularfullur rannsóknarlögreglumaður sem hefur búið lengi í Osló og heimkoman hrærir upp í gömlum minningum.
3Þáttur 3
Eldri kona finnst látin á unglingaheimilinu Valhöll og virðist sami morðingi hafa verið að verki. Lögreglan er engu nær um ástæður morðanna eða hver stendur á bak við þau.
4Þáttur 4
Þegar í ljós kemur að síðasti starfsmaður Valhallar er enn á lífi óttast Kata og Arnar að raðmorðinginn finni hann á undan þeim. Á sama tíma kafar lögreglan dýpra ofan í skuggalega sögu unglingaheimilisins og drengjanna sem voru þar.
5Þáttur 5
Kata og Arnar telja sig loks vera komin á spor raðmorðingjans en rannsóknin leiðir þau á slóðir sem þau áttu síst von á. Erfiðleikar í einkalífi þeirra beggja taka sinn toll.
6Þáttur 6
Óvæntir atburðir í rannsókn málsins reynast bæði Kötu og Arnari þungbærir. Hún á erfitt með að sleppa takinu og draugar úr fortíð Arnars, sem hann hefur lengi reynt að halda í skefjum, láta á sér kræla á ný.
7Þáttur 7
Þrátt fyrir að vera í leyfi heldur Kata rannsókn sinni áfram. Arnar reynir að hjálpa til en á fullt í fangi með sjálfan sig og fortíðina.
8Þáttur 8
Kata er staðráðin í því að ná fram réttlæti en það reynist erfiðleikum bundið og hindranirnar eru víða.
Aðalleikarar
Álit notenda
Skráðu þig inn til að skrifa álit
InnskráEngin álit ennþá. Vertu fyrstur til að skrifa álit!









