Alheimsdraumurinn

Alheimsdraumurinn (2025)

2025

Hörkuspennandi og skemmtilegir þættir um tvö lið sem þeysast um heiminn í kapplaupi við tímann og freista þess að safna stigum með því að leysa...

TMDB6.0
Hvað fannst þér?
  • ★
  • ★
  • ★
  • ★
  • ★
Viltu vinna bíómiða? Taktu þátt í Bíómiðapottinum

Skráðu þig inn og gefðu nokkrum myndum einkunn til að fá persónulega einkunn.

Skráðu þig inn →

Söguþráður

Hörkuspennandi og skemmtilegir þættir um tvö lið sem þeysast um heiminn í kapplaupi við tímann og freista þess að safna stigum með því að leysa ævintýralegar og afar fjölbreytar þrauti. Liðin eru mönnuð snillingunum Audda, Steinda, Sveppa og Pétri Jóhanni.

Þáttaröðinni lokið1 þáttaröð

Þættir

1 þáttaröð · 8 þættir
  1. 1

    Þáttur 1

    Ferðalagið hefst. Lið Audda og Steinda ferðast þvert yfir hnöttinn og hefur leik í Nýja Sjálandi á meðan Sveppi og Pétur halda til Suður Afríku. Í þættinum fylgjumst við með liðunum safna stigum m.a. á slóðum Hringadrottinssögu og taka þátt í hættulegum akstursþrautum.

  2. 2

    Þáttur 2

    Ferðalagið heldur áfram. Auddi og Steindi ferðast til Ástralíu á meðan Sveppi og Pétur eru enn þá syðst í Afríku. Í þættinum þurfa liðin m.a. að horfast í augu við lofthræðslu sína en meðal þrauta er hæsta róla í heimi.

  3. 3

    Þáttur 3

    Sveppi og Pétur eru komnir til Sambíu og safna stigum við einn af hæstu og hættulegustu fossum heims á meðan Auddi og Steindi kynnast áströlsku dýralífi á eigin skinni.

  4. 4

    Þáttur 4

    Auddi og Steindi ferðast til suðaustur Asíu og eru Filippseyjar næsti áfangastaður en þar bíður þeirra pödduhlaðborð svo fátt eitt sé nefnt . Sveppi og Pétur eru mættir til Eþíópíu að harka stig með heimamönnum.

  5. 5

    Þáttur 5

    Sveppi og Pétur eru enn þá í Eþíópíu þar sem þeir eyða deginum með ættbálki og þurfa að safna stigum að nóttu til. Auddi og Steindi þurfa m.a. að leysa filippseyska þraut þar sem grísir koma við sögu.

  6. 6

    Þáttur 6

    Auddi og Steindi mæta til Nepal og taka þar þátt í áhugaverðri þar lenskri athöfn og fara á Tinder stefnumót á meðan Sveppi og Pétur ferðast til Indlands, smakka eldsterkan þar lenskan mat og safna stigum.

  7. 7

    Þáttur 7

    Sveppi og Pétur glíma við heimamann á Indlandi á meðan Auddi og Steindi taka þátt í heræfingum með nepalska hernum. Leynigestir eru svo kynntir til sögunnar sem aðstoða strákana með lokasprettinn.

  8. 8

    Þáttur 8

    Strákarnir eru samankomnir á lokaáfangastað seríunnar. Endaspretturinn hefst og sigurvegarar Alheimsdraumsins eru krýndir.

Svipaðar myndir

Aðalleikarar

Álit notenda

Engin álit ennþá. Vertu fyrstur til að skrifa álit!

Umfjöllun af öðrum miðlum

Engar umfjallanir ennþá. Vertu fyrstur til að bæta við!