The Girl on the Train
2016
Frumsýnd: 7. október 2016
What you can see can hurt you
112 MÍNEnska
44% Critics 48
/100 Hin fráskilda Rachel Watson tekur lestina á hverjum degi til New York og fer framhjá gamla húsinu sínu á leiðinni. Húsinu sem hún bjó í með eiginmanni sínum, sem býr þar enn, með nýrri eiginkonu og barni. Hún reynir að hugsa ekki of mikið um vanlíðan sína, og byrjar að fylgjast með pari sem býr nokkru neðar - Megan og Scott Hipwell. Hún skapar draumalíf... Lesa meira
Hin fráskilda Rachel Watson tekur lestina á hverjum degi til New York og fer framhjá gamla húsinu sínu á leiðinni. Húsinu sem hún bjó í með eiginmanni sínum, sem býr þar enn, með nýrri eiginkonu og barni. Hún reynir að hugsa ekki of mikið um vanlíðan sína, og byrjar að fylgjast með pari sem býr nokkru neðar - Megan og Scott Hipwell. Hún skapar draumalíf fyrir þau í eigin höfði, um hvað þau er ótrúlega hamingjusöm fjölskylda. Og dag einn, þegar lestin fer framhjá, þá sér hún eitthvað sem slær hana, og hún reiðist. Næsta dag þá vaknar hún með rosalega timburmenn, allskonar meiðsli og marbletti, og man ekkert frá kvöldinu áður. Hún veit bara eitt - eitthvað slæmt gerðist. Þá sér hún sjónvarpsfréttirnar: Megan Hipwell er týnd. Rachel blandast inn í málið og reynir að finna út úr hvað gerðist, hvar hún er, og hvað hún sjálf var að gera þetta kvöld.... minna