Kvikmyndasafn Íslands hefur opnað streymisvefinn Ísland á filmu þar sem almenningi í fyrsta sinn opnaður aðgangur að mörgum fágætum gullmolum í vörslu safnsins.
Á vefnum er hægt að skoða myndefni úr fórum Kvikmyndasafns Íslands, allt frá árinu 1906. Á vefnum verður fyrst um sinn hægt að nálgast hátt í 300 myndir og myndskeið aðgengileg víðs vegar að á landinu, en þetta segir í tilkynningu Kvikmyndasafnsins.
Smám saman verður svo bætt á vefinn eftir því sem stafvæðingu efnis vindur fram. Einnig geta notendur valið sér staðsetningu og smellt á hana til að skoða myndskeið frá umræddum stað, auk þess að velja myndbrotin úr efnislista.
Stutt lýsing fylgir hverju myndbroti en notendum gefst tækifæri á að setja inn athugasemdir eða ábendingar. Þannig vonar Kvikmyndasafnið að þekking almennings hvað varðar staði, fólk eða annað nýtist safninu til frekari efnisgreiningar sem vert er að varðveita og miðla. Notendum gefst jafnframt kostur á að deila myndunum á samfélagsmiðlum, s.s. Facebook.
Þær myndir sem birtast nú í fyrsta sinn á vefnum eru af ýmsu tagi. Uppistaðan er heimildamyndir sem gerðar vorum um miðbik 20. aldar af frumkvöðlum kvikmyndagerðar á Íslandi og má þar nefna Ósvald Knudsen, Óskar Gíslason, Ásgeir Long, Sigurð Guðmundsson ljósmyndara og fleiri.
Þarna má finna ómetanlega gullmola sem hingað til hafa eingöngu hafa verið til á filmu en efnið hefur nú verið stafvætt til að opna almenningi aðgengi að vefnum. Elsta myndin, Slökkviliðsæfing, er frá árinu 1906 og er líklega elsta myndin sem hefur verið tekin upp hér á landi. Það var Þóra Höberg Petersen tengdadóttir Bíópetersens gamla sem fann frummyndina í Kaupmannahöfn og var hún var afhent Kvikmyndasafni Íslands árið 1982.
Myndskeiðin sem valin hafa verið sýna dagleg líf og sögulega viðburði þjóðarinnar, svo sem opnanir, íþróttaviðburði, starfshætti í sjávarútvegi og landbúnaði. Á vefnum má m.a. finna myndir frá lýðveldisháðinni 1944, myndskeið af Halldóri Laxness taka á móti Nóbelsverðlaununum, Þórbergi Þórðarsyni að gera Müllersæfingar, setningu Vigdísar Finnbogadóttur í embætti forseta svo eitthvað sé nefnt. Smám saman verður bætt við efni á vefinn en vonir standa til að þessi aðgangur að kvikmyndaarfinum muni nýtast almennum notendum, fræðimönnum. söfnum en ekki síst menntastofnunum til kennslu menningar og sögu lands og þjóðar. Nýjasta myndefnið á vefnum eru myndir Hrafnhildar Gunnarsdóttur, frá gosinu í Eyjafjallajökli, árið 2010.
Vefurinn Ísland á filmu er samstarfsverkefni Kvikmyndasafns Íslands og Kvikmyndamiðstöðvar Danmerkur (Dansk Filmistitut/Filmcentralen), sem heldur úti vefnum Danmark på film en þar er að finna myndefni er tengist sögu og menningu danaveldis.