Spjallþáttastjórnandinn Jimmy Fallon verður kynnir á Golden Globe-verðlaunahátíðinni á næsta ári.
Þetta tilkynnti Robert Greenblatt, forstjóri NBC Entertainment, í dag. Ricky Gervais var kynnir á síðustu Golden Globe-hátíð.
Greenblatt hrósaði Fallon og sagði hann mikinn grínsnilling sem ætti eftir að auka hressleikann á Golden Globe-hátíðinni enn meira.
Fallon skrifaði á Twitter að hann hlakkaði til að hitta erlendu blaðamennina í Hollywood áður en Donald Trump myndi reka þá alla úr landi.
And I’m really looking forward to spending time with the Hollywood Foreign Press before Donald Trump has them all deported.
— jimmy fallon (@jimmyfallon) August 2, 2016
Tilkynnt verður um tilnefningarnar til Golden Globe 12. desember. Hátíðin verður haldin í 74. sinn á næsta ári.