Átta íslenskar stuttmyndir munu keppa um titilinn Besta íslenska stuttmyndin á Reykjavík Shorts & Docs Festival dagana 9. – 16. maí. Aðstandendur Reykjavík Shorts & Docs Festival eru hæstánægðir með það góða úrval íslenskra stuttmynda sem sýndar verða á hátíðinni en þær myndir sem keppa um titilinn eru:
Bóbó (2012) leikstj. Barði Guðmundsson
Dögun (2012) leikstj. Valdimar Jóhannsson
Gunna (2012) leikstj. Ottó Gunnarsson
No homo (2012) leikstj. Guðni Líndal Benediktsson
Fórn (2012) leikstj. Jakob Halldórsson
Samstíga (2012) leikstj. Ásþór Aron Þorgrímsson
Yfir horfinn veg (2012) leikstj. Andri Freyr Ríkarðsson
Pas des trois (2013) leikstj. Helena Stefánsdóttir
Íslensku stuttmyndirnar verða sýndar sunnudaginn 12. maí kl. 18 og miðvikudaginn 15. maí kl. 22. Þriggja manna alþjóðleg dómnefnd velur svo þá íslensku stuttmynd sem þeim þykir hafa skarað fram úr á hátíðinni.
Reykjavík Shorts & Docs Festival verður haldin í Bíó Paradís, Kex Hostel og Slipp Bíó á Reykjavík Marina. Hefðbundið miðaverð er á allar sýningar í Bíó Paradís en frítt er á sýningar hátíðarinnar á Kex Hostel og Slipp Bíó. Þetta er í 11. sinn sem hátíðin er haldin. Auk kvikmyndasýninga verða tónleikar, pallborðsumræður, vinnusmiðjur og fjöldi annarra viðburða á hátíðinni.