Lagið Húsavík úr kvikmyndinni Eurovision Song Contest: The Story of Fire Saga hlaut rétt í þessu Óskarstilnefningu í flokki besta frumsamda lags, en verðlaunahátíðin fer svo fram 25. apríl næstkomandi.
Líkt og titillinn gefur til kynna fjallar lagið um bæinn Húsavík en gamanmyndin gerist á Húsavík og var hluti hennar tekinn upp þar í bæ. Lagið var flutt á eftirminnilegan hátt undir lok myndarinnar og það er sænska söngkonan Molly Sandén sem syngur (fyrir Rachel McAdams í myndinni). Höfundar lagsins eru Savan Kotecha, Rickard Göransson og Fat Max Gsus.
Lengi lifi Speorg-nótan!
Útlit er fyrir því að íslenskt þema verði á Óskarnum (aftur) þetta árið enda hlaut Gísli Darri Halldórsson einnig tilnefningu fyrir stuttmyndina Já fólkið.