Breska leikkonan Helen McCrory er látin 52 ára að aldri. McCrory átti afkastamikinn feril og var sérlega áberandi í sjónvarpsþáttum og kvikmyndum. Hún var hvað þekktust fyrir að fara með hlutverk í þáttunum Peaky Blinders og hlutverk Narcissu Malfoy í Harry Potter-myndabálknum.
McCrory lést úr krabbameini og var það leikarinn Damian Lewis, eiginmaður hennar, sem greindi frá andlátinu á Twitter fyrr í dag.
Segir í færslu Lewis: „Það hryggir mig að tilkynna að eftir hugrakka baráttu við krabbamein lést hin fallega og sterka Helen McCrory heima, í faðmi fjölskyldu og vina.“