Biðin eftir að sjá litla bláa kalla lifna við í bíó er brátt á enda, en nú hefur fyrsti teaser trailerinn verið gefinn út til að kynna þrívíddar – Strumpamyndina sem nú er í framleiðslu. Það verður ekkert smá spennandi að sjá gömlu góðu Strumpana, eða Skrýplana, eins og þeir voru líka kallaðir hér á Íslandi á plötunni með Halla úr Halla og Ladda, lifna við í þrívídd. Það er þónokkuð betra en að sjá þá í gömlu góðu tvívíddinni.
Myndin er væntanleg í bíó næsta sumar.