Menn eru ekki teknir neinum vettlingatökum í þessari fyrstu stiklu úr indónesíska slagsmálatryllinum The Raid 2: Berendal!
Þeir sem vilja byrja nýja árið með fuglasöng og fallegu sólsetri, ættu ekki að horfa á þessa stiklu sem er sneysafull af miskunnarlausu ofbeldi og hasar.
Fyrri myndin var snilld og miðað við þessa stiklu er von á góðu, en myndin verður frumsýnd á Sundance kvikmyndahátíðinni í Bandaríkjunum síðar í þessum mánuði.
Leikstjóri þessarar myndar, eins og þeirrar fyrri, er Gareth Evans
Myndin fer í almennar sýningar í Bandaríkjunum 28. mars nk.
Kíktu á stikluna hér fyrir neðan: