Furious 7 – Fyrsta stikla!

Fyrsta stiklan fyrir sjöundu myndina í bílatryllaseríunni Fast And The Furious var að koma út, en myndin heitir einfaldlega Furious 7 og er með þeim Vin Diesel, Paul Walker og Dwayne Johnson í aðalhlutverkum.

fast

Leikstjóri er hrollvekjumeistarinn James Wan ( Saw, The Conjuring ), og aðrir helstu leikarar eru Michelle Rodriguez, Jordana Brewster, Tyrese Gibson, Chris “Ludacris” Bridges, Elsa Pataky og Lucas Black. Þá leika harðjaxlar eins og Jason Statham, Djimon Hounsou, Tony Jaa, Ronda Rousey og Kurt Russell í myndinni einnig.

Myndin kemur í bíó 3. apríl, 2015.

Kíktu á stikluna hér fyrir neðan: