Er Tom Hanks nógu fúllyndur? Nýr þáttur af Bíóbæ

Í nýjasta þætti kvikmyndaþáttarins Bíóbæjar, sem sýndur er vikulega á sjónvarpsstöðinni Hringbraut, er rætt um nýjustu Marvel myndina Ant-Man and the Wasp: Quantumania þar sem annar þáttastjórnandi, Árni Gestur, veður í stefnu Marvels „að tala af sér“.

Einnig skilur hann ekki krafta Ant-Man þrátt fyrir tilraunir hins stjórnandans, Gunnars Antons, til að útskýra.

Ant-Man and the Wasp: Quantumania

Ant-Man and the Wasp: Quantumania 2023

Spenna, Gaman, Ævintýri · 125 mín12 áraIMDb 6.0

Scott Lang og Hope Van Dyne, ásamt Hank Pym og Janet Van Dyne, skoða Skammtaríkið (e. Quantum Realm), þar sem þau eiga í höggi við skrýtnar verur og lenda í ævintýri sem fer framúr öllu sem þau hafa áður kynnst.

Horfa:Disney+
Gefa einkunn

Svo er komið að tölvuteiknimyndinni 100% Úlfur eftir framhaldskonunginn Alexs Stadermann.

Gunnar spyr spurninga.

100% Úlfur

100% Úlfur 2020

Gaman, Ævintýri, Teiknað · 96 mín6 áraIMDb 5.6

Freddi er viss um að hann muni verða hræðilegasti varúlfur allra tíma, en honum bregður í brún þegar hann umbreytist í fyrsta sinn og verður að púðluhundi.

Gefa einkunn

„Ekki láta þessa framhjá ykkur fara enda er framhald væntanlegt,“ segir í kynningu á þættinum..

Að lokum skoða þáttastjórnendur endurgerð A man called Otto, „þar sem að hjartaknúsarinn Tom Hanks sýnir af sér nýja hlið af einskærum biturleika, eða hvað?“

A Man Called Otto

A Man Called Otto 2022

Gaman, Drama · 126 mín12 áraIMDb 7.5

Fúllyndur maður á eftirlaunum vingast óvænt við fjörugan nýjan nágranna sinn. Hinn önugi Otto hefur gefist upp á lífinu eftir að eiginkonan dó og vill að þessu ljúki helst öllu sem fyrst. Þegar ung fjölskylda flytur í…

Gefa einkunn

Er Tom Hanks nógu fúllyndur til að vera trúverðugur?

Kíktu á þáttinn hér fyrir neðan: