Streymisveitan Disney+ mun hefja göngu sína á íslenskan markað þann 15. september næstkomandi. Að auki verður opnað fyrir Disney+ í Portúgal, Noregi, Danmörku, Svíþjóð, Finnlandi, Belgíu og Lúxemborg á sama tíma en streymið hófst upphaflega vestanhafs í nóvember í fyrra.
Þykir líklegt að verðið fyrir áskriftina en það verður 7,88 Bandaríkjadalir á mánuði á Íslandi, eða 78,88 dalir á ári. Það samsvarar um 1.100 krónum á mánuði eða um 11 þúsund krónum á ári á núverandi gengi.
Disney+ opnaði í Bretlandi, Þýskalandi, Spáni, Ítalíu, Austurríki, Írlandi og Sviss í mars síðastliðnum og í Frakklandi í apríl, en auk Star Wars myndanna verður efni frá Pixar, Marvel og National Geographic aðgengilegt á streymisveitunni, að ógleymdum klassískum Disney-myndum.